Arsenal mætir Napoli og getur mætt Chelsea í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2019 12:15 Aaron Ramsey hjá Arsenal og N'Golo Kanté hjá Chelsea gætu mæst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í ár. Vísir/Getty
Stórleikur átta liða úrslita Evrópudeildarinnar verður viðureign Arsenal og Napoli en þau drógust saman í dag. Chelsea var aðeins heppnara með mótherja því liðið mætir tékkneska liðinu Slavia Prag í átta liða úrslitunum. Spænsku liðin Villarreal og Valencia drógust síðan saman í einum leiknum. Það var einnig dregið í undanúrslitin og eftir þann drátt eiga ensku liðin, Chelsea og Arsenal, möguleika á því að mætast í úrslitaleiknum. Vinni Chelsea sigur á Slavia Prag í átta liða úrslitunum mætir liðið sigurvegaranum úr viðureign Benfica og Eintracht Frankfurt. Takist Arsenal að vinna Napoli þá mætir liðið annaðhvort Villarreal eða Valencia í undanúrslitunum. Drátturinn fór fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss og í beinu framhaldi að drættinum í Meistaradeildinni. Maurizio Sarri, knattspyrnustjóri Chelsea, óskaði þess að mæta sínum gömlu lærisveinum í Napoli í úrslitaleiknum og það er enn möguleiki takist báðum liðunum að vinna einvígi sín í átta liða úrslitum og undanúrslitum. Leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram 11. apríl og 18. apríl. Undanúrslitaleikirnir fara fram 2. og 9. maí og úrslitaleikurinn verður síðan spilaður á Ólympíuleikvanginum í Bakú 29. maí.Átta liða úrslit Evrópudeildarinnar líta svona út: Napoli - Arsenal Villarreal - Valencia Benfica - Eintracht Frankfurt Slavia Prag - ChelseaÞessi lið mætast síðan í undanúrslitunum: Napoli/Arsenal - Villarreal/Valencia Benfica/Eintracht Frankfurt - Slavia Prag/Chelsea
Evrópudeild UEFA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sjá meira