Kveikt í bíl norska dómsmálaráðherrans Atli Ísleifsson skrifar 10. mars 2019 07:37 Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, og dómsmálaráðherrann Tor Mikkel Waras. Mynd/FRP
Norska öryggislögreglan rannsakar nú eld sem kom upp í bíl dómsmálaráðherra landsins, Tor Mikkel Waras, í nótt. Tilkynning um eldinn barst lögreglu og slökkviliði skömmu eftir klukkan hálf tvö að staðartíma í nótt, en bílnum hafði verið lagt fyrir utan hús ráðherrans í höfuðborginni Ósló. Verdens Gang segir að fljótlega hafi tekist að ráða niðurlögum eldsins. Eftir að tæknideild Óslóarlögreglunnar hafði framkvæmt sína rannsókn var málinu komið í hendur öryggislögreglunnar PST. Norskir fjölmiðar segja að ráðherrann, sem er í hópi fulltrúa Framfaraflokksins í ríkisstjórninni, hafi margoft þurft að sæta hótunum og skemmdarverkum að undanförnu. Í byrjun desember síðastliðinn hafði einhver krotað hakakrossa og „rasisti“ á bíl hans og hús. Þá voru einnig merki um að einhver hafi reynt að kveikja í bílnum. Þá fannst kveikivökvi undir bíl ráðherrans í síðasta mánuði.
Noregur Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira