Ásbjörn markakóngur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2019 23:15 Ásbjörn skoraði níu mörk á sínum gamla heimavelli í kvöld og gulltryggði sér markakóngstitilinn. vísir/bára
Ásbjörn Friðriksson, spilandi aðstoðarþjálfari FH, skoraði flest mörk allra í Olís-deild karla. Deildarkeppninni lauk í kvöld. Fyrir lokaumferðina var Ásbjörn með átta marka forskot á KA-manninn Tarik Kasumovic. Þeir mættust í KA-heimilinu í kvöld. Ásbjörn var magnaður í fyrri hálfleik á sínum gamla heimavelli og skoraði þá átta af níu mörkum sínum. Það var aldrei neinn möguleiki á að hann myndi láta markakóngstitilinn af hendi, jafnvel þótt hann hvíldi stóran hluta seinni hálfleiks. Mörkin níu dugðu FH þó skammt því KA vann, 29-26. Ásbjörn endaði með 151 mark, 14 mörkum meira en Tarik sem skoraði þrjú mörk í kvöld. Samherji hans hjá KA, Áki Egilsnes, var þriðji á markalistanum með 133 mörk. Hann skoraði átta mörk í leiknum í kvöld. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram, var fjórði markahæstur með 123 mörk. Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson var fimmti með 115 mörk. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem markahæsti leikmaður efstu deildar karla kemur úr FH. Einar Rafn Eiðsson var markakóngur tímabilið 2016-17 með 185 mörk. Af 151 marki Ásbjörns á tímabilinu komu 58 af vítalínunni. Hann skoraði flest mörk allra leikmanna Olís-deildarinnar úr vítum. Valsmaðurinn Anton Rúnarsson kom næstur með 47 vítamörk.Markahæstu leikmenn Olís-deildar karla tímabilið 2018-19: 1. Ásbjörn Friðriksson, FH - 151 mörk 2. Tarik Kasumovic, KA - 137 3. Áki Egilsnes, KA - 133 4. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, Fram - 123 5. Elvar Örn Jónsson, Selfoss - 115 6. Egill Magnússon, Stjarnan - 110 7. Aron Dagur Pálsson, Stjarnan - 109 8.-9. Anton Rúnarsson, Valur - 108 8.-9. Magnús Óli Magnússon, Valur - 108 10. Ihor Kopyshynskyi, Akureyri - 105
Olís-deild karla Tengdar fréttir Þessi lið mætast í úrslitakeppninni í Olís-deild karla Lokaumferðin í deildinni fór fram í kvöld. 6. apríl 2019 20:34 Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 29-26 | KA-menn kláruðu tímabilið með stæl KA vann þriggja marka sigur á FH, 29-26, í lokaleik sínum á tímabilinu. 6. apríl 2019 21:30 Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Í beinni: Fram - Vestri | Heldur sigurganga Ísfirðinga áfram? Íslenski boltinn Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Í beinni: ÍBV - KA | KA-menn í vandræðum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Sjá meira
Þessi lið mætast í úrslitakeppninni í Olís-deild karla Lokaumferðin í deildinni fór fram í kvöld. 6. apríl 2019 20:34
Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 29-26 | KA-menn kláruðu tímabilið með stæl KA vann þriggja marka sigur á FH, 29-26, í lokaleik sínum á tímabilinu. 6. apríl 2019 21:30