Myrtu börn sín þegar þær óku bílnum fram af kletti Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. apríl 2019 08:57 Sarah og Jennifer Hart ásamt börnum sínum á samkomu til stuðnings forsetaframbjóðandanum Bernie Sanders í Vancouver í Kanada árið 2016.
Ljóst þykir að hjón hafi vísvitandi orðið sér og sex börnum sínum að bana þegar þær óku bíl, með fjölskylduna innanborðs, fram af kletti í Kaliforníu í Bandaríkjunum í mars í fyrra. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar dánardómstjóra á slysinu. Hjónin, Jennifer og Sarah Hart, óku bílnum fram af klettinum nokkrum dögum eftir að barnaverndaryfirvöld hófu rannsókn á meintri vanrækslu þeirra á börnunum sex, sem öll eru ættleidd. Talið er að konurnar hafi flúið heimili sitt með börnin strax eftir heimsókn barnaverndarstarfsmanna. Lík Hart-hjónanna fundust í bílnum við rætur klettsins. Lík fimm barna þeirra fundust ýmist við bílinn eða í sjónum nokkru síðar. Lík sjötta barnsins, hins fimmtán ára Devonte, hefur enn ekki fundist. Fram kom fyrir dómi að Sarah hafi leitað að „drukknun“ á Internetinu áður en þær lögðu af stað og að Jennifer, sem sat við stýri, hafi vísvitandi stigið á bensíngjöfina og hraðað bílnum í átt að klettinum. Þannig hafi ekki verið um að ræða slys heldur morð.Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið.Nánari upplýsingar hér.
Bandaríkin Mest lesið Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent „Ég get ekki orða bundist“ Innlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Sjá meira