Einari ekki refsað fyrir Spaugstofuummælin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. apríl 2019 16:28 Einari var ekki skemmt eftir leikinn gegn Stjörnunni í síðasta mánuði og lét dómarana heyra það. vísir/daníel þór
Aganefnd HSÍ sá ekki ástæðu til að refsa Einari Jónssyni, þjálfara Gróttu, fyrir ummæli sem hann lét falla eftir leik Seltirninga gegn Stjörnumönnum í þarsíðustu umferð Olís-deildar karla. Stjarnan vann leikinn 30-27.Í samtali við Vísi gagnrýndi Einar dómara leiksins nokkuð harðlega. Meðal ummæla hans voru: „Ég veit að við erum nú ekki besta liðið á landinu en standardinn á dómgæslunni er náttúrulega fyrir neðan allar hellur. Það er ekki hægt að bjóða upp á þetta sko [...] Ég sem hélt að Spaugstofan væri hætt sko en maður veltir því bara fyrir sér á köflum hvort þetta sé falin myndavél. Þetta er ekki boðlegt og ég vill ekki segja að þetta halli eitthvað endilega á okkur.“ Ummæli Einars voru tekin fyrir á fundi aganefndar í dag og komst hún að þeirri niðurstöðu að ummælin væru ekki refsiverð. Í úrskurði aganefndar segir samt að Einar hefði mátt temja sér varfærnislegra orðfæri en innan tjáningarfrelsis þjálfara rúmist réttur þeirra til að segja sína skoðun á dómgæslu.„Samkvæmt 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er stjórn eða framkvæmdastjóra HSÍ heimilt að vísa til aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega. Aganefnd hefur farið yfir umrædd ummæli. Aganefnd tekur undir að þjálfarinn hefði í viðtalinu mátt temja sér varfærnislegra orðfæri. Það er hins vegar mat nefndarinnar að gera verður í þessum efnum, greinarmun á, annars vegar ummælum sem fela í sér almenna gagnrýni á störf dómara eða framkvæmd leikja, og hins vegar alvarlegum aðdróttunum í garð einstakra aðila, ásakanir um óheiðarleika eða annað slíkt. Telur nefndin að umrædd ummæli feli fyrst og fremst í sér gagnrýni þjálfarans sem byggja á upplifun hans og hann getur að einhverju leyti fært rök fyrir. Innan tjáningarfrelsis þjálfarans rúmast, að mati nefndarinnar, réttur hans til að segja, innan skynsamlegra marka, skoðun sína á frammistöðu dómara og skipulagi HSÍ. Með vísan til alls framangreinds er niðurstaða nefndarinnar að ummælin feli ekki í sér ósæmilega framkomu sem skaðað getur ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til að láta aðila sæta viðurlögum í máli þessu.“Grótta féll úr Olís-deildinni eftir tap fyrir ÍR á laugardaginn. Einar hættir sem þjálfari liðsins eftir tímabilið. Daníel Freyr Andrésson, markvörður Vals, fékk ekki bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leik liðsins gegn FH á sunnudaginn. Dómurinn vakti talsverða athygli og skiptar skoðanir voru á honum. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grótta 30-27| Öruggt í seinni hjá Stjörnunni Grótta var yfir í hálfleik en það dugði ekki til. 24. mars 2019 23:00 Formaður dómaranefndar HSÍ: Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun Dómarar leiks FH og Vals gerðu rétt þegar þeir sýndu Daníel Frey Andréssyni rauða spjaldið. 1. apríl 2019 11:30 Einar um dómgæsluna í deildinni: „Ég hélt að Spaugstofan væri hætt“ Grótta tapaði fyrir Stjörnunni með þremur mörkum, 30-27, í Olísdeild karla í kvöld. 24. mars 2019 21:47 Umfjöllun og viðtöl: Grótta - ÍR 23-32 | Grótta í Grill 66 deildina Grótta fékk í dag úr Olís deild karla með tapi gegn ÍR. ÍR vann sér inn tvö mikilvæg stig í baráttunni um 8. sætið. 30. mars 2019 19:15 Snorri Steinn: Hægt að túlka reglurnar eftir hentisemi Annar þjálfara Vals segir að Daníel Freyr Andrésson hefði ekki átt að fá rauða spjaldið gegn FH. 1. apríl 2019 14:11 Umfjöllun og viðtöl: FH - Valur 26-28 | Valsmenn unnu stórleikinn Valur vann tveggja marka sigur á FH, 26-28, í stórleik umferðarinnar í Olís-deild karla. 31. mars 2019 22:45 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grótta 30-27| Öruggt í seinni hjá Stjörnunni Grótta var yfir í hálfleik en það dugði ekki til. 24. mars 2019 23:00
Formaður dómaranefndar HSÍ: Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun Dómarar leiks FH og Vals gerðu rétt þegar þeir sýndu Daníel Frey Andréssyni rauða spjaldið. 1. apríl 2019 11:30
Einar um dómgæsluna í deildinni: „Ég hélt að Spaugstofan væri hætt“ Grótta tapaði fyrir Stjörnunni með þremur mörkum, 30-27, í Olísdeild karla í kvöld. 24. mars 2019 21:47
Umfjöllun og viðtöl: Grótta - ÍR 23-32 | Grótta í Grill 66 deildina Grótta fékk í dag úr Olís deild karla með tapi gegn ÍR. ÍR vann sér inn tvö mikilvæg stig í baráttunni um 8. sætið. 30. mars 2019 19:15
Snorri Steinn: Hægt að túlka reglurnar eftir hentisemi Annar þjálfara Vals segir að Daníel Freyr Andrésson hefði ekki átt að fá rauða spjaldið gegn FH. 1. apríl 2019 14:11
Umfjöllun og viðtöl: FH - Valur 26-28 | Valsmenn unnu stórleikinn Valur vann tveggja marka sigur á FH, 26-28, í stórleik umferðarinnar í Olís-deild karla. 31. mars 2019 22:45