Tæki Mane fram yfir Salah á lokametrunum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. apríl 2019 14:30 Er Mane mikilvægari leikmaður en Salah? vísir/getty
Sadio Mane hefur verið einn af bestu mönnum Liverpool í vetur og er hann orðinn svo mikilvægur að Jamie Carragher vildi heldur halda Mane en Mohamed Salah í síðustu leikjum titilbaráttunnar. Mane er með 18 mörk í deildinni í vetur og er næstmarkahæstur á eftir þeim Sergio Aguero og Salah sem eru með 19 mörk hvor. Sérfræðingar Monday Night Football á Sky Sports ræddu frammistöðu Mane og mikilvægi hans í Liverpool. Þeirra á meðal var gamli Liverpoolmaðurinn Jamie Carragher. „Þetta snýst ekki bara um fjölda markanna sem hann skorar heldur mikilvægi markanna,“ sagði Carragher. „Mikilvægasta markið í hverjum leik er fyrsta markið, lið tapa sjaldan leikjum úr þeirri stöðu.“ Sky tók saman tölfræði yfir síðustu ellefu leiki Liverpool, fyrir utan leiki sem hafa endað 0-0. Þar skorar Mane fyrsta markið í sjö leikjum, tvisvar skoraði andstæðingurinn og í tveimur leikjum var það einhver annar en Mane sem opnaði markareikninginn fyrir Liverpool.Síðustu 11 leikir Liverpool, fyrir utan 0-0 jafntefli.mynd/sky sports„Það skiptir engu máli ef þú skorar mörk þegar liðið er að vinna 4-0. Mane skorar mikilvæg mörk,“ sagði Carragher en Mane skoraði til dæmis fyrra mark Liverpool í stórleiknum við Chelsea um helgina. Carragher var spurður að því hvort hann myndi frekar sleppa Mane eða Salah í síðustu leikjunum á tímabilinu, þar sem Liverpool er í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn. „Salah. Þeir skora jafn mörg mörk og ég er mikill stuðningsmaður Mane.“ „Fólk talar um hversu mikilvægt það var að fá Salah og Van Dijk en Mane var sá sem kom Liverpool aftur upp í toppbaráttuna. Hann var fyrsta stóra nafnið sem Klopp fékk til Liverpool og hann kom þeim aftur á meðal fjögurra efstu.“ „Hann er búinn að vera þarna frá upphafi upprisunnar.“
Enski boltinn Mest lesið Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Króatar Dags lentu í kröppum dansi í fyrsta leik á EM Handbolti Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Handbolti Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Körfubolti Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Fótbolti Norðmenn áfram í milliriðla Handbolti Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Íslenski boltinn Einar enn í einangrun en aðrir ferskir Handbolti Átta íslensk mörk í svekkjandi tapi Handbolti Fleiri fréttir Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Sjá meira