Í báðum tilfellum bar Gunnar Jóhann við minnisleysi vegna mikillar neyslu vímuefna, áfengis og annarra fíkniefna.

Nauðguðu stúlku þar til hún öskraði af sársauka
Það var í júlí árið 2000 sem Gunnar Jóhann, sem grunaður er um manndráp í Mehamn, og vinur hans hittu tvær stúlkur fyrir utan verslunarmiðstöð í Keflavík. Þaðan fór þau heim til Gunnars en öll voru þau um sautján ára gömul. Höfðu drengirnir á orði að fara í kynlífsleiki. Móðgaðist önnur stúlkan við það tal og rauk á dyr. Hin stúlkan ætlaði að elta en gleymdi farsíma sínum í herbergi mannsins.Sakaði stúlkan piltana tvo að hafa nauðgað sér í herberginu. Fyrst hefði hún reynt að neita og í framhaldinu hefðu þeir haldið höndum hennar til að geta haft samræði við hana. Þeir hefðu ekki hætt fyrr en hún öskraði af sársauka. Þá hefði hún loks klætt sig, hringt í vinkonu og verið á leiðinni út þegar Gunnar Jóhann réttu henni þúsundkall fyrir leigubíl.
Piltarnir voru dæmdir í 22 og 24 mánaða fangelsi fyrir nauðgun og var dómurinn staðfestur í Hæstarétti. Í dómi Hæstaréttar sagði að framferði þeirra bæri vott um miskunnarleysi og fullkomið virðingarleysi við kynfrelsi hennar. Þeir ættu sér engar málsbætur.

Mætti ofurölvi með hafnaboltakylfu
Árið 2007 var Gunnar Jóhann svo dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraðsdómi, sem síðar var þyngd í átján mánuði, fyrir líkamsárás tveimur árum fyrr í heimahúsi. Faðir hringdi þá í lögregluna að næturlagi og sagði mikil læti koma úr herbergi sonar síns. Þegar lögregla mætti á svæðið sat sonur mannsins alblóðugur og þrír aðrir menn í herberginu. Gunnar Jóhann var einn þeirra og hélt á hafnarboltakylfu.Neitaði Gunnar Jóhann í fyrstu sök en játaði svo brot sín fyrir dómi. Myndir af líkamsárásinni voru á meðal sönnunargagna í málinu. Hann hefði verið að innheimta peninga sem hann hefði talið fórnarlambið hafa tekið ófrjálsri hendi.
Þótti sannað að Gunnar Jóhann hefði gerst sekur um stórhættulega líkamsárás sem fólst í því að slá soninn með hafnarboltakylfu í höfuð og líkama og slá hann hnefahöggi í höfuð. Þótti mikil mildi að afleiðingarnar hefðu ekki verið meiri en raun varð.
Handrukkun og frelsissvipting
Þá var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi árið 2010 fyrir frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás og rán. Meðal þess sem Gunnar Jóhann var dæmdur fyrir var að hafa í félagi við annan mann lamið karlmann, lokað inni í skáp með 400W ljósaperu hangandi fyrir ofan hann.Sótti Gunnar Jóhann svo rafmagnssnúru, vafði um háls mannsins og herti að. Hótuðu þeir að drepa hann ef hann útvegaði ekki peninga. Var maðurinn svo bundinn við stól með snúrunni og límt fyrir munn hans.
Skipuðu þeir manninum daginn eftir að fara í bankaútibú og fá yfirdrátt til að greiða skuld sína. Hótuðu þeir að meiða sambýliskonu mannsins ef hann skilaði sér ekki. Eftir árangurslausa ferð í bankann sló Gunnar Jóhann manninn hnefahöggi í andlit áður en þeir fóru með hann í bíltúr um Reykjanesbæ. Fengu þeir hann til að leysa út lyfseðil og stela verkfærum.
Auk fyrrnefndra brot hefur Gunnar Jóhann verið dæmdur fyrir þjófnað, umferðarlagabrot, vopnalagabrot, ölvunarakstur og fíkniefnabot svo eitthvað sé nefnt.

Mikil neysla á heimilinu
Þeir Gunnar Jóhann og Gísli Þór komu frá afar brotnu heimili. Gísli Þór lýsti uppvaxtarárum sínum í viðtali við Vikuna árið 2009 en þeir Gísli og Gunnar voru sammæðra. Mikil áfengisneysla var á heimilinu og fátækt sömuleiðis.„Við vorum bara tvö á tímabili, ég og mamma og svo hersing af einhverjum mönnum. Það var mikið um fólk á heimilinu og drykkjufélagar hennar sóttu þangað, ekki bara um helgar. Það var aldrei tekið tillit til þess að ég þyrfti að mæta í skóla daginn eftir. Ég var sífellt að sofna í skólanum en ástæðan var auðvitað að ég fékk engan svefn vegna drykkjuláta. Ég var líka oftast svangur því forgangsröðun mömmu var undarleg. Það voru alltaf til peningar fyrir áfengi og sígarettum en sjaldnast mat.“
Bræðurnir fluttu síðar til Noregs. Trond Einar Olaussen, bæjarstjóri í Gamvik, segir Gísla Þór hafa verið áberandi í bæjarlífinu og afar vel liðinn.
„Gísli hafði mikilvægu hlutverki að gegna í bænum. Hann var mikið í menningarsenunni og vann með ungu fólki í tónlist og var bara afar indæl manneskja.“

Leiddir fyrir dómara í kvöld
Gunnar Jóhann er í haldi norsku lögreglunnar og verður leiddur fyrir dómara um kvöldmatarleytið ásamt öðrum karlmanni, vini bræðranna, sem grunaður er um aðild að málinu. Verður farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir yngri bróðurnum og viku varðhald yfir vininum.Sá hefur neitað sök í málinu en ekki liggur fyrir hver formleg afstaða yngri bróðurins er. Hann skrifaði þó færslu á Facebook, augnablikum áður en hann var handtekinn, þar sem hann viðurkenndi að hafa orðið bróður sínum að bana.
Hinir grunuðu hafa ekki verið yfirheyrðir að viðstöddum verjendum og túlki. Til stendur að gera það á miðvikudaginn.