Liverpool þarf hjálp frá stórleikja-Vardy Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. maí 2019 15:30 Jamie Vardy fagnar marki númer 30 á móti þeim sex bestu. vísir/getty
Næst síðasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina en titilbarátta Manchester City og Liverpool er enn þá á fullu þegar aðeins tveir leikir eru eftir. Manchester City er á toppnum með 92 stig, stigi meira en Liverpool og mætir Leicester á mánudagskvöldið. Liverpool getur þá vermt toppsætið en það mætir Newcastle í kvöldleik á laugardaginn á útivelli. Liverpool er ansi líklegt til að klára Newcastle-menn sem sigla lygnan sjó rétt fyrir neðna miðja deild og hafa ekki áhyggjur af neinu. Lærisveinar Jürgens Klopps þurfa svo smá hjálp frá Leicester til að halda toppsætinu fyrir lokaumferðina. Maðurinn sem Liverpool þarf að treysta á er Jamie Vardy, framherji Leicester, sem er alveg einstaklega góður að koma boltanum í markið á móti bestu liðum deildarinnar. Hann skoraði tvívegis um síðustu helgi þegar að Leicester vann Arsenal, 3-0. Vardy er nú búinn að skora 30 mörk á móti sex bestu liðum deildarinnar á sínum ferli í ensku úrvalsdeildinni sem er tæplega helmingur marka hans í deild þeirra bestu. Framherjinn magnaði er búinn að skora 80 mörk í ensku úrvalsdeildinni í 174 leikjum, þar af 30 sem fyrr segir á móti þeim sex bestu. Hann kann svo sannarlega að skora á móti stórliðunum. Vardy hefur einnig staðið sig vel á móti Manchester City en hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp eitt í ellefu leikjum á móti Manchester City í öllum keppnum.Jamie Vardy has now scored 30 league goals against the Premier League 'Big Six'.Big. Game. Player. pic.twitter.com/qHQCvwUudL— Squawka Football (@Squawka) April 28, 2019
Enski boltinn Mest lesið Slógu met sem Ísland er fegið að eiga ekki lengur Handbolti Draumabyrjun hjá Carrick Enski boltinn Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Enski boltinn Einar enn í einangrun en aðrir ferskir Handbolti EM í dag: Fullkominn leikur fyrir Gumma Gumm Handbolti Pólverji dæmdur í tveggja leikja bann og verður ekki með gegn Íslendingum Handbolti „Stoltur að fá þetta tækifæri og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut“ Fótbolti Ótrúleg sigurganga Luke Littler tók loks enda Sport Leiðtogar á reynslu: „Prófsteinninn verður þegar vesenið byrjar“ Handbolti „Ég er bara aumur aðstoðarþjálfari“ Sport Fleiri fréttir Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Nott. Forest - Arsenal | Tekst Forest að stela frá þeim ríku? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Sjá meira