Þriðjungur atvinnulausra erlendir ríkisborgarar Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. maí 2019 14:25 Atvinnuleysið í apríl var mest á Suðurnesjum. fbl/stefán
Að jafnaði voru 6.803 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í apríl og fjölgaði þeim um 841 frá marsmánuði. Þeim hefur hins vegar fjölgað um 2612 frá sama mánuði á síðasta ári. Skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði nam því 3,7 prósentum en í mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar gætir áhrifa gjaldþrots WOW air verulega í atvinnuleysistölunum. Atvinnuleysishlutfallið er þó næstum tvöfalt hærra meðal erlendra ríkisborgara á Íslandi. Alls voru 2.499 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok apríl eða um 34 prósent allra atvinnulausra. Þessi fjöldi samsvarar um 7,1 prósent atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi muni minnka í maí, ekki síst vegna áhrifa árstíðarsveiflu og verði á bilinu 3,4 til 3,6 prósent. Í greiningu stofnunarinnar kemur jafnframt fram að atvinnuleysið hafi verið mest á Suðurnesjum, eða 6,4 prósent, og jókst það um 1 prósent frá fyrri mánuði. Á höfuðborgarsvæðinu var atvinnuleysið 3,9 prósent og jókst um 0,6 prósentustig. Þá fjölgaði atvinnulausum í öllum atvinnugreinum á milli aprílmánaðanna 2018 og 2019. Mest var fjölgunin í ýmsri sérhæfðri þjónustu og er þar einkum um að ræða sérhæfða ferðatengda þjónustustarfsemi, og svo í flutningastarfsemi, sem endurspeglar gjaldþrot WOW og fækkun tengdra starfa. Minnsta aukning atvinnulausra var í störfum tengdum landbúnaði og fiskveiðum sem og í opinberri þjónustu. Mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar um vinnumarkaðinn má nálgast hér.
Efnahagsmál Vinnumarkaður WOW Air Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira