Sænskur blaðamaður getur ekki tekið augun af Hatara Kolbeinn Tumi Daðason og Stefán Árni Pálsson skrifa 13. maí 2019 17:15 Hatari á appelsínugula dreglinum í gær.
Tobbe Ek, sænskur blaðamaður á Aftonbladet, er ekkert lítið spenntur fyrir framlagi Íslands í Eurovision þetta árið. Hatari tók búningaæfingu í höllinni í dag en framundan er dómararennslið í kvöld sem gildir til jafns við atkvæði áhorfenda. Töluvert fer fyrir Ek á Eurovision en hann sést aldrei án derhúfu sinnar sem hann ber þvert á höfuðið. Það er ekki hægt að segja að Ísland sé í áskrift að fimm stjörnu dómum þegar kemur að Eurovision. Sænskur kollegi Tobbe Ek fór hörðum orðum um framlag Íslands í fyrra, líkt laginu við skólaritgerð en Ísland hafnaði að lokum í síðasta sæti. Í þetta skiptið ríkir mun meiri spenna fyrir íslenska laginu. Tobbe Ek segist hreinlega ekki geta hætt að horfa á framlag Íslands, að því er segir í stuttum pistli hans á Aftonbladet . Hatari keyri á BDSM-fagurfræði sem sé svo skýr með búri, keðjum sínum og böndum. Þá hrósar hann Klemensi Hannagan sérstaklega fyrir söng sinn í dag en Klemens syngur viðlagið í falsettu. Klemensi hafi toppað atriðið í dag en auk þess sé fjölmargt annað sem erfitt sé að taka augun af. Núna klukkan 19:00 hefst síðan dómararennslið sjálft og er beðið eftir því með mikilli eftirvæntingu í blaðamannahöllinni í Tel Aviv. Fyrr í dag negldi Hatari æfingu hér í Expo-höllinni og er útlitið fyrir kvöldinu bjart. Hatara er spáð áfram í kvöld og það nokkuð sannfærandi.
Eurovision Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira