Lífið

Crawford minnist sonarins

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Fjölskyldan árið 2024. Frá vinstri: Presley Gerber, Cindy Crawford og Rande Gerber.
Fjölskyldan árið 2024. Frá vinstri: Presley Gerber, Cindy Crawford og Rande Gerber. Getty/Phillip Faraone

Ofurfyrirsætan og leikkonan Cindy Crawford segir einlægni og góðvild hafa einkennt fas sonar síns Presley Gerber sem lést aðeins 27 ára gamall. Fjölskyldan minnist Gerber í Instagram færslu.  

„Hjörtu okkar eru í molum eftir að hafa misst okkar ástkæra son og bróður. Við erum svo þakklát fyrir að hafa haft Presley í lífi okkar í 27 ár. Hann er ljúf og falleg sál sem elskaði og er elskuð, nú og að eilífu. Við erum svo stolt af því hvernig hann kom fram, af góðvild og einlægni,“ skrifar Crawford á Instagram og með fylgir svarthvít mynd af Gerber.



Faðir Presley er athafnamaðurinn Rande Gerber og systir hans fyrirsætan Kaia Gerber og er fjölskyldan sögð hafa verið afar náin. Hún segist afar þakklát fyrir þann kærleika og stuðning sem fólk hafi veitt sér.

„Við erum þakklát fyrir þann mikla kærleika og stuðning sem við höfum fengið frá svo mörgum sem þekkja og elska fjölskylduna okkar, og jafnvel frá ókunnugu fólki sem finnur til með okkur. Þar til við hittumst á ný, elsku drengurinn okkar,“ skrifar Crawford að auki.

Presley hóf fyrirsætuferil sinn þegar hann var fimmtán ára og fetaði þannig í fótspor móður sinnar. Hann fannst láinn á meðferðarheimili þann 20. september síðastliðinn en hann hafði talað opinskátt um baráttu sína við fíkn. Dánarorsök eru ekki ljós en eru til rannsóknar. Grunur leikur á að hann hafi tekið of stóran skammt eiturlyfja.


Tengdar fréttir

Sonur Cindy Crawford er látinn

Presley Gerber, fyrirsæta og sonur ofurfyrirsætunnar og leikkonunnar Cindy Crawford, er látinn, 27 ára að aldri. Óvíst er með dánarorsök en hann er sagður hafa verið í meðferð vegna fíknivanda þegar hann lést.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.