Ellefu starfsmönnum á skrifstofu bókunarvefsins og ferðaþjónustufyrirtækisins Guide to Iceland hefur verið sagt upp síðan WOW air varð gjaldþrota í lok mars. Fréttablaðið greinir frá. Öðru starfsfólki hefur verið gert að lækka laun sín, mismikið þó.
Guide to Iceland var stofnað 2012 og rekur vefsíðuna guidetoiceland.is sem er eins konar markaðstorg fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þar koma ferðaþjónustufyrirtæki vörum sínum á framfæri gegn þóknun.
Davíð Ólafur Ingimarsson, framkvæmdastjóri Guide to Iceland, segir stjórnendur sömuleiðis hafa lækkað laun sín. Höggið sé mikið eftir fall WOW og þau finni fyrir að ferðaþjónustumarkaðurinn sé að dragast saman. Auk falls WOW air nefnir hann hátt verðlag á Íslandi, versnandi heimsefnahag, Brexit og minnkandi kaupmátt.
Guide to Iceland hagnaðist um 676 milljónir árið 2018 og var 600 milljóna króna arður greiddur til hluthafa. Þar af fóru rúmar 300 milljónir til stærsta hluthafans Ingólfs Abraham Shahin sem á 55 prósenta hlut í félaginu.
Guide to Iceland segir upp fólki og lækkar laun
Tengdar fréttir
Guide to Iceland kaupir Bungalo
Starfsemi Bungalo hefur nú alfarið flust til höfuðstöðva Guide to Iceland í Borgartúni 29, en Bungalo mun þó áfram verða rekið sem sjálfstætt félag.
Guide to Iceland fær rúmlega 2 milljarða fjárfestingu
Bandaríska ráðgjafa- og eignarstýringafyrirtækið State Street Global Advisors hefur fjárfest í bókunarfyrirtækinu Guide to Iceland fyrir 20 milljónir bandaríkjadala
Leiðsögumenn segja Guide to Iceland hafa klúðrað jólum hátt í 40 ferðamanna
Finnbogi Þorkell Jónsson og Halldór Kristinn Haraldsson ætla ekki framar að taka að sér verkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland.
Fyrirtækið Guide to Iceland greiðir 600 milljóna króna arð
Guide to Iceland sem rekur markaðstorg fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hagnaðist um 676 milljónir króna á síðasta ári. Tekjuvöxtur fyrirtækisins nam 70 prósentum á milli ára. Vinna að því að fara í útrás með hugbúnaðinn.