Lífið

Jóhannes Haukur og Rósa selja hæð við Laugarásveg á níutíu milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhannes og Rósa hafa komið sér vel fyrir í Laugarneshverfinu.
Jóhannes og Rósa hafa komið sér vel fyrir í Laugarneshverfinu.
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson og eiginkona hans, Rósa Björk Sveinsdóttir, hafa sett hæðina við Laugarásveg á sölu en ásett verð er 89,9 milljónir.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð sem er um tvö hundruð fermetrar að stærð og þar af rúmlega þrjátíu fermetra bílskúr.

Húsið var byggt árið 1964 og eru alls fimm svefnherbergi í eigninni og tvö baðherbergi. DV greinir fyrst frá.

Fasteignamat eignarinnar er rúmlega sjötíu milljónir en hér að neðan má sjá myndir af eign þeirra hjóna.

 

Fallegt hús.
Falleg og vel skreytt sjónvarpsherbergi.
Björt og opin borðstofa og setustofa.
Fínasta svefnherbergi og krossinn góði fyrir ofan hjónarúmið.
Snyrtilegt baðherbergi.
Sjónvarp í eldhúsinu hjá Jóhannesi og Rósu og fjölskyldu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.