Svíar létu fimm mörk duga gegn Tælendingum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2019 14:45 Elin Rubensson og Fridolina Rolfo skoruðu báðar í dag. vísir/getty Svíþjóð tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna með sigri á Tælandi, 5-1, í Nice í dag. Svíar eru á toppi F-riðils með sex stig en Tælendingar á botninum án stiga og með markatöluna 1-18. Ekkert lið hefur fengið á sig fleiri mörk á einu og sama heimsmeistaramótinu og Tæland á enn eftir að leika einn leik í Frakklandi. Það tók Svía aðeins sex mínútur að ná forystunni. Linda Sembrant skoraði þá með skalla eftir aukaspyrnu Elin Rubensson. Á 19. mínútu skoraði Kosovare Asllani annað mark Svía og þremur mínútum fyrir hálfleik skoraði Fridolina Rolfo þriðja markið. Staðan var 3-0 í hálfleik líkt og í leik Bandaríkjanna og Tælands sem bandarísku heimsmeistararnir unnu 13-0. Svíar buðu ekki upp á sömu markasúpu og þær bandarísku og létu tvö mörk duga í seinni hálfleik. Á 81. mínútu skoraði Lina Hurtig fjórða mark Svíþjóðar. Í uppbótartíma minnkaði fyrirliði Tælands, Kanjana Sung-Ngoen, muninn í 4-1 og Tælendingar fögnuðu eins og þeir hefðu orðið heimsmeistarar. Svíar áttu hins vegar síðasta orðið þegar Rubensson skoraði úr vítaspyrnu þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 5-1, Svíþjóð í vil. HM 2019 í Frakklandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti