„Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 30. september 2026 21:32 Jamil Abiad þjálfari Vals Anton Brink/Vísir Valskonur unnu gríðarlega öflugan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í fyrstu umferð Bónus deild kvenna 77-64. Jamil Abiad þjálfari Vals var að vonum sáttur í leikslok. „
Stelpurnar mættu vel gíraðar í kvöld. Allt frá vörninni okkar, til undirbúningstímabilsins og þá mættum við með eitthvað til að sanna“ sagði Jamil Abiad þjálfari Vals. „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum og sagt að við séum ekki með nógu gott lið því við höfum misst nokkra leikmenn“ „Síðustu tvö tímabil höfum við sýnt að við séum með gott lið og við erum meira en bara einhverjir tveir leikmenn og stelpurnar sýndu það í kvöld. Allt frá bekknum og allar stelpurnar á gólfinu þá var þetta mikill liðssigur í kvöld“ Hrikalega öflug byrjun á tímabilinu hjá Val sem vinna Íslandsmeistarana. „Þetta er stórt. Sjálfstraust er allt í íþróttum og við sýndum í kvöld að við getum keppt við bestu liðin. Þetta eru ríkjandi Íslandsmeistarar og allar spár spá þeim að verja titilinn svo þetta er ekki bara stór sigur fyrir stelpurnar núna heldur byggir þetta sjálfstraust farandi inn í tímabilið“ „Þetta sýnir bara hversu hart þær eru að leggja á sig og ég vona bara að allir sem hafi horft hér í kvöld geti étið hatt sinn og skilið að það eru ekki bara einn eða tveir leikmenn sem gera lið og ég er ótrúlega stoltur af stelpunum í kvöld“ Aðspurður um það hver væri helsti munurinn á liðunum í kvöld var svarið einfalt. „Þetta var bara kraftur, ákefð og löngun til að sanna okkur. Allar stelpurnar sáu spárnar í sjónvarpinu, þær sáu neikvæðnina frá öllum í sjónvarpinu og þær tóku það bara út á gólfinu hérna í kvöld og unnu frábæran liðssigur“ Það mátti heyra á Jamil að hann væri ekki sáttur með að vera spáð neðarlega en Vali var spáð 7. sæti deildarinnar af spámönnum. „Ég tek alla jákvæðnina og alla neikvæðnina. Þetta er allt hluti af íþróttum en við látum verkin tala“ sagði Jamil Abiad.
Valur Bónus-deild kvenna Körfubolti Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira