Lífið

Arnar Freyr og Salka Sól eiga von á barni

Sylvía Hall skrifar
Það eru spennandi tímar hjá þessu frábæra listafólki.
Það eru spennandi tímar hjá þessu frábæra listafólki. FBL/Anton Brink
Tónlistarparið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld eiga von á sínu fyrsta barni. Þetta tilkynnti parið á samfélagsmiðlum í dag.

Parið hefur verið saman í nokkur ár, þau trúlofuðu sig í ágúst 2017 og munu gifta sig þann 27. júlí næstkomandi. Sem stendur eru þau stödd í Hong Kong þar sem Vesturport er að setja upp Hróa Hött í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Selmu Björnsdóttur en Salka Sól samdi einmitt tónlistina fyrir sýninguna.





Í Twitter-færslu Sölku Sólar segir að barnið sé meira en velkomið í heiminn og þau geti ekki beðið eftir því að verða fjölskylda.

Það má því segja að von sé á litlu tónlistarundri en Arnar Freyr er hluti af rapptvíeykinu Úlfur Úlfur og Salka Sól hefur komið víða við, bæði á sviði og í tónlist, en hún er í hljómsveitum á borð við Reykjavíkurdætur og Amabadama og var einn þjálfaranna í þættinum The Voice.


Tengdar fréttir

Ástfanginn upp fyrir haus

Rapparinn Arnar Freyr Frostason segist vera úlfur. En fyrst og fremst maður. Hann er góður gaur sem hefur gaman af því að blóta og segist hafa breyst við að elska Sölku Sól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.