Lífið

Tvær þáttaraðir af Love Island á ári frá og með 2020

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sjónvarpsstöðin ITV hefur ákveðið að fjölga þáttaröðum af raunveruleika- og stefnumótaþættinum Love Island.
Sjónvarpsstöðin ITV hefur ákveðið að fjölga þáttaröðum af raunveruleika- og stefnumótaþættinum Love Island. Vísir/getty
ITV hefur nú staðfest að frá og með árinu 2020 verði tvær þáttaraðir á ári af stefnumótaþættinum Love Island sem hefur notið talsverðra vinsælda hjá ungu kynslóðinni.

Þátturinn er vinsælasta sjónvarpsefnið hjá ungu fólki á aldrinum 16-34 ára í Bretlandi og síðasta þáttaröð Love Island sló áhorfsmet.

„Eftir metár er gaman að geta tilkynnt um aðra þáttaröð til viðbótar árið 2020,“ sagði Paul Mortimer yfirmaður nýmiðla hjá ITV.

Love Island hefur enn á ný sannað að þátturinn er hin fullkomin formúla sem laðar að unga áhorfendur,“ segir Mortimer.

Á næsta ári fara tökur á Love Island fram í glæsihýsi í Suður-Afríku.

Tveir svipt sig lífi eftir Love Island

Þrátt fyrir að raunveruleikaþátturinn hafi notið vinsælda hefur hann einnig verið harðlega gagnrýndur og áhorfendur látið í ljós áhyggjur sínar af sálarlífi þátttakenda og illri meðferð á þeim.

Sophie Gradon svipti sig lífi ári eftir að hún tók þátt í Love Island og síðastliðinn mars svipti annar fyrrverandi þátttakandi sig lífi, knattspyrnumaðurinn Mike Thalassitis.

Bjóða upp á sálfræðimeðferð að tökum loknum

Carolyn McCall, framkvæmdastjóri ITV, var spurð hvort ekki væri ástæða til að hætta með þættina í ljósi þessa. Sjónvarpsstöðinni þætti greinilega ástæða til að bjóða þátttakendum Love Island sálfræðimeðferð að tökum loknum.

„Við bjóðum upp á það vegna þess að okkur finnst það mikilvægt. Þú yfirgefur glæsihýsið eftir átta vikur – eftir að hafa lifað allt öðruvísi lífi og ert núna að taka þátt í alvöru heiminum,“ segir McCall sem þvertekur fyrir illa meðferð á þátttakendum.

„Það getur reynst mörgum afar erfitt að aðlaga sig að hinum raunverulega heimi og það er þess vegna sem við bjóðum upp á sálfræðimeðferð.“



Sannfærð um samfélagslegt gildi þáttanna

McCall segist sjálf horfa á þáttinn á hverju kvöldi og  er sannfærð um samfélagslegt gildi Love Island.

„Málið með Love Island er að þetta er stefnumótaþáttur. Það veitir manni gleði að horfa á hann en hann sýnir líka hversdagslegar hæstu hæðir og lægstu lægðir hvers sambands,“ sagði McCall.

„Þau [þátttakendurnir] eru líka vingjarnleg, veita hvert öðru stuðning og ræða sín á milli um málefni sem margt fólk kann að meta því þetta eru málefni sem varða hversdagsleikann í nútímaástarsamböndum.“



 
 
 
View this post on Instagram
Thanks for the fun challenge, lads! #LoveIsland

A post shared by Love Island (@loveisland) on Jul 11, 2019 at 1:49pm PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.