Hnúðlaxar veiðst víða í sumar Karl Lúðvíksson skrifar 29. ágúst 2019 08:25 Þessi hnúðlax veiddist í Héðinsfirði í fyrra sumar.
Hnúðlaxar hafa verið að veiðast víða í sumar og í mun meira magni en áður svo það er uggur í veiðimönnum gagnvart þessum fréttum. Áhrif vaxandi göngu hnúðlax eru þó óþekkt en það er jafnvel talið að hann berjist um hrygningarsvæði við aðra laxfiska af mikilli hörku og skaði því hrygningu annara tegunda. Því var lengi haldið fram að hnúðlax gengi ekki ofarlega í árnar en dæmin sanna annað þar á meðal veiði á hnúðlöxum í Soginu. Veiðimenn eru sem fyrr beðnir um að drepa alla hnúðlaxa sem þeir veiða á senda á Veiðimálastofnun, annað hvort fiskinn heilfrosinn eða hreistursýni. Listinn yfir árnar sem hnúðlaxar hafa veiðst í er orðinn langur og gæti lengst ennþá þar sem það er vel þekkt að hann getur verið að ganga í árnar fram á haust. Árnar eru Grímsá, Hvítá í Borgarfirði, Straumfjarðará, Deildará, Eyjafjarðará, Hafralónsá, Sog, Ölfusá, Miklavatn í Fljótum, Norðurá, Selá í Vopnafirði, Blanda, Sandá, Laxá í Aðaldal, Þjórsá,, Fögruhlíðará, Breiðdalsá og Bjarnarfjarðará.
Mest lesið Helgin var góð í Ytri Rangá Veiði Lokatölur komnar úr Norðurá Veiði Breiðdalsá með augum Nils Jörgensen Veiði Sjóbirtingsveiðin búin að vera góð fyrir austan Veiði 87 sm hrygna sem lét hafa mikið fyrir sér Veiði Heildarveiðin í Veiðivötnum 20.293 fiskar Veiði Laxveiðin hafin í Skotlandi Veiði Mikið af laxi á Iðu Veiði Veiðihúsið við Hítará fær yfirhalningu Veiði Flundra í Skorradalsvatni Veiði