Bóndinn, rithöfundurinn, athafnamaðurinn, lögmaðurinn og formaður Landssamtaka landeigenda Óskar Magnússon telst tekjuhæsti listamaðurinn á Íslandi á síðasta ári, ef marka má Tekjublað Frjálsrar Verslunar. Tekjur hans eru í nokkrum sérflokki meðal listamanna, voru áætlaðar rúmlega 6,2 milljónir á mánuði árið 2018. Síðasta bók hans, Verjandinn, kom út í lok árs 2016.
Næstir á eftir honum koma tveir listamenn sem jafnframt má ætla að hafi þorra tekna sinna af öðrum störfum. Haukur Heiðar Hauksson, söngvari Diktu, er jafnframt læknir og metsölurithöfundurinn Ragnar Jónasson var yfirlögfræðingur Gamma áður en hann færði sig yfir til Arion banka í upphafi árs. Tekjur Hauks eru sagðar hafa verið rúmar 2,2 milljónir á mánuði á síðasta ári og mánaðartekur Ragnars um 1,8 milljónir.
Steinþór Hróar Steinþórsson er talinn hafa verið fjórði tekjuhæsti listamaðurinn á síðasta ári, með 1,7 milljónir á mánuði. Tekjur Björns Braga Arnarssonar eru áætlaðar næstum 1,5 milljónir á mánuði, rétt eins og leikstjórans Baltasars Kormáks. Fast á hæla þeirra fylgir svo fyndnasti maður Íslands árið 2000, Pétur Jóhann Sigfússon, með mánaðartekjur upp á rúmlega 1,4 milljónir.
Meðal annarra listamanna sem finna má í efri hluta tekjulistans eru Kristín Eysteinsdóttir, Borgarleikhússstjóri, og rithöfundurinn Iðunn Steinsdóttir. Þær eru báðar sagðar hafa verið með rúmlega 1,2 milljónir í mánaðartekjur á síðasta ári, sem gerir þær að tekjuhæstu konunum á listanum.
Þá eru tekjur grínistanna Jóhanns Alfreðs Kristinssonar og Hugleiks Dagssonar sagðar hafa verið rúmlega milljón á mánuði á síðasta ári, rétt eins og söngvarans Helga Björnssonar og leikarans Arnar Árnasonar.
Tekjur Jóns Gnarr, Ólafs Arnalds, Vilborgar Davíðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur eru jafnframt taldar sambærilegar, allar rétt rúmlega 800 þúsund krónur á mánuði.
Á hinum enda listans má síðan sjá rithöfundinn Hallgrím Helgason, leikarann Þorvald Davíð Kristjánsson og söngkonuna Ragnheiði Gröndal. Tekjur þeirra eru allar taldar hafa verið í kringum 240 þúsund krónur á mánuði í fyrra. Rapparinn Erpur Eyvindarson, leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir og starfsbróðir hennar Benedikt Erlingsson voru með tekjur í kringum 200 þúsund krónur á mánuði, ef marka má Tekjublaðið.
Tekjublaðið telur nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útvarsskyldar tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Miðað er við útvarsstofn samkvæmt álagningarskrá.
Viðskipti innlent
Óskar telst langtekjuhæsti listamaðurinn
Tengdar fréttir
Vargurinn tekjuhæsta samfélagsmiðlastjarnan
Töluverður tekjumunur er innan raða íslenskra áhrifavalda, ef marka má Tekjublað Frjálsrar verslunar.
Tekjur Íslendinga: Jón með 28,3 milljónir á mánuði
Jón Björnsson, fyrrverandi forstjóri Festar, er tekjuhæstur íslenskra forstjóra ef marka má tekjublað Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt útreikningum blaðsins nema mánaðarlaun Jóns á árinu 2018 28,363 milljónum króna. Næst launahæstur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson með 27,514 milljónir á mánuði.
Óskar Magnússon ætlar ekki að sækja um listamannalaun
Óskar Magnússon á sér eftirtektarverðan feril en er til þess að gera nýr höfundur og til alls líklegur á þeim vettvangi.