Lífið

Rosaleg stikla úr þriðju Bad Boys myndinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marcus Burnett og Mike Lowrey mæta aftur.
Marcus Burnett og Mike Lowrey mæta aftur.
Sautján árum eftir að Bad Boys 2 kom út er orðið ljóst að þriðja myndin kemur í kvikmyndahús í janúar á næsta ári. Kvikmyndin mun hún bera nafnið Bad Boys for Life.

Will Smith og Martin Lawrence fara með aðalhlutverkin í þriðju myndinni, rétt eins og í hinum tveimur.

Bad Boys kom út árið 1995 og seinni myndin síðan árið 2003. Báðar voru mjög vinsælar en þær fjölluðu um lögreglumennina Marcus Burnett og Mike Lowrey.

Sony hefur nú gefið út fyrstu stikluna úr myndinni og er greinilega um að ræða rosalega hasarmynd eins og hinar tvær. Hér að neðan má sjá stikluna úr þriðju myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.