Bjarki Már þriðji markahæstur í þýsku deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. september 2019 11:30 Bjarki Már hefur skorað 7,5 mörk að meðaltali í leik það sem af er tímabils. vísir/getty
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, hefur farið vel af stað með Lemgo og er þriðji markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar. Bjarki hefur skorað 30 mörk í fyrstu fjórum leikjum Lemgo í deildinni. Liðið vann fyrsta leik sinn en hefur nú tapað þremur í röð. Íslenskættaði Daninn Hans Óttar Lindberg, leikmaður Füchse Berlin, er markahæstur í deildinni með 34 mörk. Landi hans, Morten Olsen, sem leikur með Hannover-Burgdorf, er næstmarkahæstur með 33 mörk. Hann hefur einnig gefið 20 stoðsendingar. Bjarki hefur nýtt 79% skota sinna það sem af er tímabili. Tíu af 30 mörkum hans hafa komið af vítalínunni.Bjarki Már fær leikmann Wetzlar í fangið.vísir/gettyBjarki skoraði sjö mörk í sigri á Wetzlar, 28-32, í 1. umferðinni og sex mörk í tapi fyrir Magdeburg, 24-32, í 2. umferðinni. Í þriðju umferðinni skoraði hann tíu mörk í tapi fyrir Melsungen, 26-23, og í síðustu umferð skoraði hann sjö mörk þegar Lemgo tapaði fyrir Hannover-Burgdorf, 26-36. Bjarki hefur leikið í Þýskalandi síðan 2013. Hann var tvö ár í herbúðum Eisenach og svo fjögur ár hjá Füchse Berlin. Bjarki var markahæstur í þýsku B-deildinni tímabilið 2014-15. Hann hefur mest skorað 119 mörk á einu tímabili í þýsku úrvalsdeildinni.
Þýski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira