Vandræði Man. United halda áfram eftir tap gegn West Ham Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2019 15:00 Aaron Cresswell skorar úr aukaspyrnunni. vísir/getty Vandræði Manchester United á leiktíðinni halda áfram en liðið tapaði á útivelli fyrir West Ham á útivelli, 2-0, er liðin mættust í 6. umferð enska boltans í dag. Það voru ekki mörg færi í fyrri hálfleiknum en liðin voru ekki að opna sig og það þurfti að bíða lengi eftir fyrsta marki leiksins. Fyrra mark West Ham skoraði Andriy Yarmolenko undir lok fyrri hálfleiks. Hann fékk boltann við vítateig Man. Utd eftir samspil Mark Noble og Felipe Anderson og þrumaði boltanum í fjærhornið. 1-0 í hálfleik. Juan Mata hefði átt að jafna fyrir Manchester United er síðari hálfleikurinn var nýhafinn en hann hitti ekki markið eftir góða fyrirgjöf Andreas Pereira. Annað markið var af dýrari gerðinni. Frábært aukaspyrnumark hjá Aaron Cresswell sem þrumaði boltanum framhjá varnarlausum David de Gea en það kom á 84. mínútu. Lokatölur 2-0.- Man Utd in Premier League under Solskjaer As caretaker: W10-D2-L1 Signs deal as permanent manager on 28 March As permanent boss W4-D4-L6#WHUMUN#ManUtd — Gracenote Live (@GracenoteLive) September 22, 2019 West Ham er komið upp í 4. sæti deildarinnar eftir sigurinn en þeir eru með ellefu stig eftir sex leiki. Man. Utd er með átta stig í sjöunda sæti deildarinnar. Crystal Palace og Wolves gerðu 1-1 jafntefli í hinum leiknum sem lokið er í ensku úrvalsdeildinni. Leander Dendoncker kom Palace yfir með sjálfsmarki en Diogo Jota bjargaði stigi fyrir Wolves í uppbótartíma. Á 73. mínútu fékk Romain Saiss sitt annað gula spjald og lék Wolves því einum færri síðasta stundarfjórðunginn en það kom ekki að sök. Wolves er með þrjú stig að loknum fimm leikjum en Crystal Palace er með sjö stig í 13. sætinu.Astonishing late drama at Selhurst Park sees Wolves salvage a point in the final seconds through Diogo Jota's equaliser#CRYWOLpic.twitter.com/MMdu4f60L3 — Premier League (@premierleague) September 22, 2019 Enski boltinn