„Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 06:33 Raphinha fagnar marki með Lamine Yamal en þessir tveir hafa verið frábærir á þessu tímabili. AP/Joan Monfort Raphinha, framherji Barcelona, sagði að það hefði verið erfitt fyrir hann að spila leikinn gegn Aston Villa í Meistaradeild UEFA í gærkvöldi eftir að hafa frétt af andláti Jesús de Miguel, framherja Tenerife.
De Miguel lést eftir að hafa farið í hjartastopp í kjölfar áreksturs við Jesús Owono, markvörð Real Oviedo, á mánudagskvöld. Hann var þrítugur. Spænska knattspyrnusambandið tilkynnti að engir leikir yrðu spilaðir innanlands á þriðjudag, miðvikudag eða fimmtudag á meðan spænski fótboltinn syrgir De Miguel. Leikir Meistaradeildarinnar á þriðjudag fóru þó fram og skoraði Raphinha tvö mörk þegar Barcelona vann enska úrvalsdeildarliðið Villa 3-0 á Nývangi. „Hvar sem [De Miguel] er vona ég að hann finni sína leið,“ sagði Raphinha við Movistar eftir leikinn. „Ég vil senda fjölskyldu hans styrk og í dag vil ég ekki tala um fótbolta. Eftir að ég sá fréttirnar leið mér ekki vel. Þegar öllu er á botninn hvolft var hann knattspyrnumaður eins og við. Þetta hefði getað komið fyrir hvert okkar sem er. Þetta hefði getað komið fyrir mig,“ sagði Raphinha. Affected by De Miguel's death, Raphinha said he struggled to focus in UCL win Barcelona captain Raphinha paid an emotional tribute to late Tenerife player Jesús de Miguel after scoring a brace in the Champions League victory over Aston Villa. https://t.co/3EJebajIon— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) November 4, 2026 „Það er mjög erfitt að fara út á völlinn og spila leik við þessar aðstæður. Hann var leikmaður á sama aldri og ég. Kannski er það ástæðan fyrir því að þetta hafði svona mikil áhrif á mig,“ sagði Raphinha Í virðingarskyni var söngur Meistaradeildarinnar ekki leikinn fyrir upphafsflautið á Nývangi, heldur var haldin mínútuþögn til minningar um De Miguel. Hansi Flick, þjálfari Barça, sagði að fréttirnar hefðu fengið mikið á Raphinha. „Það sem gerðist á Tenerife held ég að hafi haft mikil áhrif á hann, eins og á okkur öll,“ sagði Flick á blaðamannafundi eftir leikinn. „Við vottum fjölskyldunni, félaginu, vinunum og öllum okkar dýpstu samúð. Þetta er mikill harmleikur. Ég held að þetta hafi haft mikil áhrif á hann,“ sagði Flick Þrátt fyrir allt tókst Raphinha að halda áfram ótrúlegu formi sínu í upphafi tímabilsins og skoraði tvö mörk eftir að Lamine Yamal hafði opnað markareikninginn, en með sigrinum batt Barça enda á fullkomna byrjun Villa í Meistaradeildinni á þessu tímabili. Raphinha hefur nú skorað 19 mörk í öllum keppnum á tímabilinu – meira en nokkur annar í fimm sterkustu deildum Evrópu – og Flick treystir því að hann haldi áfram að skora jafn ört. „Ég efast ekkert um [að hann haldi þessum takti],“ sagði hann. „Hann er í góðu skapi og á góðu skriði núna. Ég er virkilega ánægður með hann. Hann er frábær leikmaður,“ sagði Flick. 🚨🎙️| Raphinha on Jesus de Miguel: “I think today is not a good day to talk about football. In the end, this can happen to anyone.” “The truth is that it's very tough. When we saw the news, it was complicated.” https://t.co/ehzmWsVZnd— Kalshi FC (@KalshiFC) November 3, 2026
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn FC Barcelona Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira