Svimaði við lestur greinargerðar ríkislögmanns Heimir Már Pétursson skrifar 20. september 2019 21:00
Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar segir ríkið ekki fylgja reglum hins siðaða samfélags í málsvörn sinni gagnvart kröfum Guðjóns um bætur vegna ólöglegrar frelsissviptingar hans í Geirfinnsmálinu. Hann hafi í fyrsta skipti á ferlinum svimað eftir lestur á greinargerð ríkisins í málinu. Guðjón Skarphéðinsson sem var fundinn sekur í Hæstarétti árið 1980 fyrir hlutdeild að dauða Geirfinns Einarssonar árið 1974, hefur stefnt ríkinu fyrir ólöglega frelsissviptingu í 1.792 daga og harðræði í löngu gæsluvarðhaldi. En hann og fjórir aðrir sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum voru allir sýknaðir í Hæstarétti í fyrra. Samkomulag um bætur tókst ekki við sakborninga og ættingja við sáttanefnd sem forsætisráðherra skipaði. En Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Guðjóns ræddi einnig við ríkislögmann eftir það. „Og það tókst ekki að semja. Bilið var of mikið til að við næðum saman.“Það voru þá upphæðirnar sem ekki voru nógu háar? „Já þær voru ekki í samræmi við dómafordæmi,“ segir Ragnar og vísar þar til bóta sem einstaklingar sem tengdust Klúbbnum fengu í bætur eftir að hafa setið í um hundrað daga í gæsluvarðhaldi vegna vitnisburðar sakborninga. Guðjón krefst 972 milljóna auk dráttarvaxta í bætur.Guðjón Skarphéðinsson hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu.VísirEru sáttaleiðir ennþá mögulegar þegar mál er komið fyrir dóm? „Já við lögmenn erum að sætta mál alla daga hvort sem þau eru komin fyrir dóm eða ekki.“Þannig að þið bjóðið ennþá fram á það við stjórnvöld að ná sáttum? „Já, já. Ég hef að sjálfsögðu sagt það við settan ríkislögmann að umbjóðandi minn sé ætið reiðubúinn að ræða samkomulag,“ segir Ragnar. Skipaður ríkislögmaður í málinu hefur lagt fram greinargerð í héraðsdómi þar sem aðallega er stuðst við málatilbúnaði í sakamálinu 1980. Ríkið hafnar öllum kröfum Guðjóns og vísar meðal annars til lagagreina sem kveða á um frávísun bóta ef sakborningar beri einhverja ábyrgð á framvindu mála. „Það er grundvallar misskilningur hjá ríkisstjórninni að halda að hún geti borið fyrir sig sakfellingardóminn frá 1980. Hann var felldur úr gildi í fyrra með dómi Hæstaréttar í sýknumálinu,“ segir Ragnar. Þar með hefjist allir fyrningarfrestir í málinu í fyrra haust en ekki 1974. Ríkið sýni mikla óbilgirni í máli Guðjóns. „Hún er svo ótrúleg að í fyrsta skipti á ævinni svimaði mig eftir að hafa lesið greinargerð ríkisins. Það hefur ekki komið fyrir mig áður. Það er gengið svo langt. Það er slíkur óheiðarleiki og ekki gætt að reglum hins siðaða samfélags að það er eiginlega ekki hægt að trúa því þótt maður lesi greinargerðina aftur og aftur,“ segir Ragnar Aðalsteinsson. Í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu í dag segir meðal annars að stjórnvöld hafi lagt áherslu á að semja um sanngjarnar bætur til þeirra sem sýknaðir voru og aðstandenda þeirra sem fallnir væru frá og afla til þess viðeigandi lagaheimildar. Ríkisstjórnin muni halda áfram athugun á slíkri lausn, sem aðilar gætu verið sáttir við.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir Sonur Sævars segir Valtý lögmann eiga ríkra hagsmuna að gæta Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, kemur Erlu Bolladóttur til varnar í nýrri grein. Um er að ræða viðbrögð Hafþórs við þeirri skoðun þriggja karlmanna sem sátu í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 að ekki eigi að greiða Erlu skaðabætur án þess að hún verði formlega sýknuð af dómi fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 13:49 Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. 20. september 2019 09:10 Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 10:51 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Sonur Sævars segir Valtý lögmann eiga ríkra hagsmuna að gæta Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, kemur Erlu Bolladóttur til varnar í nýrri grein. Um er að ræða viðbrögð Hafþórs við þeirri skoðun þriggja karlmanna sem sátu í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 að ekki eigi að greiða Erlu skaðabætur án þess að hún verði formlega sýknuð af dómi fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 13:49
Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. 20. september 2019 09:10
Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 10:51