Elli krani kom fyrir risastórum glugga í húsi Gísla og Nínu Stefán Árni Pálsson skrifar 29. október 2019 12:30 Elli krani hefur starfað í bransanum í 15 ár. Hann getur nánast allt.
Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tóku þá ákvörðun á árinu að taka hús sitt við Nesveginn á Seltjarnarnesinu alfarið í gegn frá a-ö. Gulli Byggir fylgist með verkefninu á Stöð 2 og var annar þátturinn um framkvæmdirnar á dagskrá Stöðvar 2 í gær. Hjónin hafa búið í húsinu í fjögur ár en urðu að flytja út úr því á meðan framkvæmdunum stendur. Þegar framkvæmdir hófust var búið að endurhanna húsið og gera nýjar teikningar. Eitt af því sem átti að gera var að stækka húsið í áttina að sjónum og koma einnig fyrir risastórum glugga sem er um fimm metrar á breidd og yfir tvo metra á hæð. Áætlun sem engum leist í raun vel á þar sem veðráttan er ekki alltaf nægilega góð svona upp við sjó. Í þætti gærkvöldsins var komið að því að koma þessu risastóra glugga fyrir í húsi þeirra hjóna. Glugginn er fimm metrar á breidd og um 2,5 metrar á hæð og stendur við sjóinn úti á Nesi. Það voru ekki margir sem ráðlögðu þeim hjónum að koma svona stóru gleri fyrir á þessum stað þar sem veðráttan getur verið nokkuð slæm svona upp við sjóinn. Það heppnaðist aftur á móti að koma honum fyrir og var það sjálfur Elli krani sem stjórnaði aðgerðum við Nesveginn. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst. Gísli og Nína náðu ekki að klára framkvæmdirnar fyrir þáttinn. Til að byrja með áttu þær að taka þrjá mánuði en þegar seinni þátturinn var tekinn upp fyrr í þessum mánuði höfðu liðið átta mánuðir. Þetta var síðasti þátturinn í seríunni af Gulla Byggir og þurfa því áhorfendur Stöðvar 2 að bíða fram á næsta vor til að sjá loka útkomuna, ef það tekst.
Gulli byggir Tengdar fréttir Margir af helstu leikurum Íslands hreinsuðu allt út úr húsi Gísla og Nínu Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tóku þá ákvörðun á dögunum að taka hús sitt við Nesveginn á Seltjarnarnesinu alfarið í gegn frá a-ö. 22. október 2019 13:30 Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira
Margir af helstu leikurum Íslands hreinsuðu allt út úr húsi Gísla og Nínu Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tóku þá ákvörðun á dögunum að taka hús sitt við Nesveginn á Seltjarnarnesinu alfarið í gegn frá a-ö. 22. október 2019 13:30