Sigursteinn: Ákváðum að taka þennan slag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. október 2019 21:44 Sigursteinn var sáttur með sína menn í kvöld. vísir/vilhelm
FH bar sigurorð af ÍR, 27-32, í Olís-deild karla í kvöld. Úrslitin voru svo gott sem ráðin í hálfleik þegar FH-ingar voru ellefu mörkum yfir, 8-19. „Við vorum virkilega sáttir með frammistöðuna í fyrri hálfleik. Vörnin var mjög góð og við refsuðum grimmt. Það hefði verið hrokafullt að vera ekki sáttur með stöðuna í hálfleik,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, í samtali við Vísi eftir leik. ÍR-ingar keyra venjulega grimmt í bakið í andstæðingum sínum en FH-ingar svöruðu í sömu mynt. „Við hlupum líka með þeim og vorum undirbúnir fyrir það. Þeir hafa verið virkilega öflugir þegar kemur að því að refsa mótherjunum og þeir spila á háu tempói. Við ákváðum að taka þann slag með þeim,“ sagði Sigursteinn. Phil Döhler var frábær í markinu hjá FH og varði tæplega 30 skot. Sigursteinn var að vonum ánægður með frammistöðu þess þýska. „Ég er mjög sáttur. Hann hefur átt nokkra erfiða leiki en við vitum að hann er góður markvörður,“ sagði Sigursteinn. FH steig aðeins af bensíngjöfinni undir lokin en Sigursteinn hafði yfir litlu að kvarta. „Ef einhver hefði boðið mér fimm marka sigur á móti liðinu í 2. sæti fyrir leik hefði ég svo sannarlega tekið það,“ sagði Sigursteinn að lokum.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: ÍR - FH 27-32 | Yfirburðir FH-inga FH keyrði yfir ÍR í fyrri hálfleik og lagði þá grunninn að sigrinum. 30. október 2019 21:15 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Umfjöllun: ÍR - FH 27-32 | Yfirburðir FH-inga FH keyrði yfir ÍR í fyrri hálfleik og lagði þá grunninn að sigrinum. 30. október 2019 21:15