Lífið samstarf

Glimmerefni og pallíettur rjúka út í jólakjólana

Vogue fyrir heimilið kynnir
Framhaldsskólastelpurnar eru að sauma sér jóla- og árshátíðakjóla og glimmerefni og pallíettur rjúka út hjá Vogue fyrir heimilið.
Framhaldsskólastelpurnar eru að sauma sér jóla- og árshátíðakjóla og glimmerefni og pallíettur rjúka út hjá Vogue fyrir heimilið.

„Ekki einungis gardínuefni heldur einnig fjölbreytt úrval af fataefnum og efnum í rúmföt og fleira. Nú er einnig mjög vinsælt að sauma gjafapoka utan um jólapakkana til að sleppa við allan einnota pappír og við eigum mikið af skemmtilegum efnum í poka.“

Hún segir aftur hafa aukist að fólk saumi fötin sjálft eftir nokkurt hlé.

„Eftir hrun fór fólk að sauma aðeins aftur en núna hefur hinsvegar orðið algjör sprenging í efnasölu. Verðið hefur frekar lækkað en hitt síðustu ár og þú færð auðveldlega efni í fallegan kjól á bilinu 2500 til 6500 krónur. Framhaldsskólastelpurnar eru að sauma sér jóla- og árshátíðakjóla og glimmerefni og pallíettur rjúka út. Enda er miklu skemmtilegra að vera í einhverju sérsaumuðu sem enginn annar á eins. Við fylgjumst vel með tískustraumum og tökum alltaf inn það nýjasta. Núna er velúr mjög vinsælt og við eigum til alla liti. Netaefni er einnig mjög vinsælt í yfirkjóla og við eigum yfir þrjátíu liti af því, blúndur, silki og brúðarefni! Það kemur enginn að tómum kofanum hjá okkur. Við erum allar fagmanneskjur í versluninni og leiðbeinum með sniðin og saumaskapinn,“ segir Kristín.

Þær taki þó ekki að sér að sauma jólakjóla en á saumastofu verslunarinnar eru hinsvegar saumuð gluggatjöld eftir máli.

„Fólk vill aftur þennan hlýleika á heimilin eins og var. Það er brjálað að gera á saumastofunni en við mælum fyrir fólk, saumum og hengjum upp tjöldin. Þunn Voal-tjöld eru mjög vinsæl en hjá okkur er hægt að skoða sýnishorn og velja úr ólíkum efnum, þykkar eða þunnar, myrkvunartjöld og margt fleira.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×