Lífið

Þagði í heilt ár eftir að þau fluttu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Konráð Pálmason flutti til Svíþjóðar með eiginkonu sinni og þremur drengjum árið 2016.
Konráð Pálmason flutti til Svíþjóðar með eiginkonu sinni og þremur drengjum árið 2016.
„Þetta var náttúrlega áskorun fyrir krakkana að flytja,” segir Konráð Pálmason sem flutti til Svíþjóðar ásamt eiginkonu sinni Elínu Elísabetu Torfadóttur og þremur drengjum sumarið 2016. Lóa Pind heimsótti fjölskylduna í 2. þætti af Hvar er best að búa? á Stöð 2 í gærkvöldi. 

Strákarnir þrír eru í dag 6, 8 og 12 ára og tókust á við þessar nýju aðstæður hver með sínum hætti. Arnór, sem er 8 ára málglaður og vel gefinn piltur, lýsir því í myndskeiðinu sem hér fylgir úr þætti gærkvöldsins hvernig hann þagði fyrsta árið í skólanum.

„Ég talaði ekki neitt, skildi ekki neitt, nýfluttur, búin að vera þarna í kannski hálfan mánuð, kunni bara að segja kúkalabbi,” segir hann sposkur á svip. Hann þagði allan fyrsta veturinn í skólanum, vildi ekki tala fyrr en hann var búinn að ná tökum á tungumálinu, segir pabbi hans. 

Í þriðja þætti, sem verður á dagskrá næsta sunnudag, heimsækir Lóa Pind ásamt myndatökumanni íslenskan feminista og flakkara sem gerðist múslimi rúmlega tvítug, giftist seinna marokkóskum manni og þau eiga nú fjórar dætur, 3ja ára og yngri. Og höfðu opnað kaffihús í gömlu medínunni í Essaouira viku áður en sjónvarpsteymið mætti í heimsókn.

Hvar er best að búa? er 8 þátta röð, fjórir þættir verða sýndir fyrir jól og fjórir eftir. Þar heimsækir Lóa fólk og fjölskyldur í 9 löndum í fjórum heimsálfum. Fólk sem lét drauminn um að búa í útlöndum rætast, m.a. fjölskyldu sem er að byggja draumahús á Balí, flugvirkja og markþjálfa í Englandi, eldri borgara sem njóta lífsins á Spáni, fyrrverandi lögregluþjón og fyrrverandi dönskukennara hjá tölvuleikjarisa á Kýpur og hjón sem ákváðu að selja allt sitt og flakka um veröldina á heimasmíðuðum húsbíl.

Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Lúðvík Páll Lúðvíksson og Egill Aðalsteinsson, klippingu annast Ólafur Þór Chelbat, Tumi Bjartur Valdimarsson og Guðni Hilmar Halldórsson. Framleitt af Lóa Production fyrir Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.