Nespresso fagnar tveggja ára afmæli Nespresso kynnir 29. nóvember 2019 08:45 Nespresso hefur fengið frábærar viðtökur hjá kaffiþyrstum Íslendingum frá því fyrsta verslunin var opnuð í Kringlunni. Nespresso „
Við fögnum tveggja ára afmæli á laugardaginn með pompi og prakt. Við opnuðum í Kringlunni, fyrstu Nespresso-verslunina á Íslandi fyrir tveimur árum þann 30. nóvember 2017, eftir langan aðdraganda,“ segir Ívar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Nespresso á Íslandi. Hann segir kaffiþyrsta Íslendinga hafa tekið Nespresso fagnandi og vörumerkið hafi vaxið hratt.„Við fengum strax frábærar viðtökur í Kringlunni og í kjölfarið opnuðum við fyrirtækjaþjónustu Nespresso. Sú þjónusta hefur vaxið hratt að undanförnu hjá okkur enda bjóðum við hágæða kaffi og góða þjónustu. Fljótlega opnuðum við svo smærri verslun í Smáralind og höldum einnig úti öflugri vefverslun. Gegnum vefverslunina fara fjölmargar pantanir á dag heim að dyrum viðskiptavina. Það er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið frábærar,“ segir Ívar.Endurvinnsla lykilatriði í starfsemi Nespresso Kaffið frá Nespresso er í endurvinnanlegum álhylkjum og segir Ívar fyrirtækið leggja mikla áherslu á endurvinnslu. Nespresso taki þátt í verkefnum um framhaldslíf hylkjanna, þau séu bæði notuð í ný hylki og einnig í aðrar vörur. Í raun á hreint ál endalaust framhaldslíf. „Hylkin eru nánast full endurvinnanleg og til gamans má geta að það þarf einungis sem samsvarar 1,1 hylki til að búa til nýtt. En álhylkin þurfa ekki að enda aftur sem kaffihylki heldur geta þau endað sem Victorinox vasahnífur eða Vélosophy reiðhjól til að nefna örfá samstörf sem Nespresso hefur farið í með notuð álhylki á heimsvísu, svo dæmi séu nefnd,“ útskýrir Ívar.Reiðhjólaframleiðandinn Vélosophy býr til reiðhjól úr notuðum Nespresso-hylkjum.„Við leggjum mikla áherslu á að fólk komi hylkjunum aftur til okkar og með öllum sölum og sendingum fylgir sérstakur endurvinnanlegur poki til að safna notuðum hylkjunum í. Pokanum þarf að koma til okkar í verslun svo hægt sé að endurvinna þau en einnig taka bílstjórar okkar pokana til baka þegar þeir koma með nýja pöntun heim til fólks á höfuðborgarsvæðinu. Hylkin eru send til Svíþjóðar þar sem þau eru endurunnin og í flutningana eru nýtt tóm pláss í skipum (þar sem meira er flutt inn en út úr landi) svo flutningarnir skilja ekki eftir sig aukið kolefnisspor. Einnig má benda á að með hylkjunum er fólk að nota nákvæmlega það magn af kaffi sem þarf sem tryggir betri nýtingu á kaffinu sjálfu,“ segir Ívar. Nespresso leggur mikla áherslu á að hylkin frá þeim séu úr 100% hreinu áli svo hægt sé að endurvinna þau. Ál er hluti af lausninni.Ilmandi tilboð alla helgina „Í tilefni af svörtum föstudegi og afmælisins á laugardaginn verður hægt að gera góð kaup hjá okkur alla helgina, jafnvel klára jólagjafakaupin,“ segir Ívar. „Það verða ýmis tilboð í gangi hjá okkur, kaffivélar og fylgihlutir á 20% afslætti og vinsælu Nespresso PURE postulínsbollarnir, sem margir eru að safna, verða á 2 fyrir 1 um helgina. Mjólkurflóararnir okkar eru mjög vinsælir gæðanna vegna og þeir verða á tilboði um helgina,“ segir Ívar og lofar góðum móttökum í verslunum Nespresso. „Ekki má gleyma hátíðarkaffinu okkar sem viðskiptavinir okkar bíða eftir ár hvert. Ég hvet fólk til að kíkja til okkar um helgina. Það verður tónlist, gjafapokar og frábær stemming í Kringlunni, og minni á að tilboðin gilda einnig í Smáralind og vefversluninni á nespresso.is.“Þessi kynning er unnin í samstarfi við Nespresso.
Matur Mest lesið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Lífið Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Lífið Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Sykurlausar og dísætar smákökur Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni Fleiri fréttir Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Óléttan breytir viðhorfum til innihaldsefna Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Sjá meira