82 ára vöðvatröll tók innbrotsþjóf í bakaríið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. nóvember 2019 14:36 Það er fátt sem Willie Murphy kallar ömmu sína. Vísir
Það fór illa fyrir innbrotsþjófi sem braust inn á heimili hinnar 82 ára Willie Murphy í Rochester í Bandaríkjunum í síðustu viku. Murphy er mikill líkamsræktarfrömuður og pakkaði innbrotsþjófinum einfaldlega saman. Það var síðla kvölds síðastliðinn fimmtudag er Murphy heyrði einhvern kalla fyrir utan heimili hennar. Áður en hún vissi af var innbrotsþjófurinn komin inn til hennar. Því miður fyrir innbrotsþjófinn hefur Murphy unnið til verðlauna í lyftingum og lyftir hún að sögn Washington Post 100 kílóum í réttstöðulyftu. „Hann valdi vitlaust hús til þess að brjótast inn í,“ hefur Post eftir Murphy en í myndbandinu sem fylgir má heyra hana lýsa átökunum í smáatriðum. Braut hún stól á baki innbrotsþjófsins, hélt honum niðri, hellti sjampói yfir hann og slóst við hann vopnuð kústi. „Ég bý ein og er gömul en veistu hvað, ég þrælseig,“ hefur Post eftir Murphy. Lögreglan í Rochester segir að innbrotsþjófurinn hafi verið ölvaður er hann braust inn. Hann var handtekinn á staðnum og færður í fangaklefa. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Murphy kemst í fréttirnar. Hún hóf lyftingar þegar hún var á áttræðisaldri til þess að halda heilsunni.
Bandaríkin Mest lesið Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Erlent Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Sjá meira