Rúnar: Ætli við verðum ekki fyrsta liðið sem vinnur Hauka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. desember 2019 20:36 Rúnar kvaðst sáttur með spilamennsku Stjörnunnar í kvöld. vísir/bára
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með frammistöðu sinna manna í jafnteflinu við Aftureldingu þótt hann hefði viljað taka tvö stig með heim í Garðabæinn. „Ég er pínu svekktur en svo getur maður horft á þetta þannig að við héldum boltanum og stiginu síðustu hálfu mínútuna og glutruðum þessu ekki frá okkur eins og við höfum áður gert í vetur,“ sagði Rúnar við Vísi eftir leik. „Við tökum stigið og höfum það hugfast að við vorum betri stærstan hluta leiksins. Við vorum með frábærar lausnir oft á tíðum.“ Rúnar var heilt yfir sáttur yfir frammistöðu Stjörnunnar í leiknum. „Vörnin datt niður í seinni hálfleik en var mjög góð framan af. Sóknarleikurinn frábær, skipulagður og agaður,“ sagði Rúnar sem spilaði á fáum mönnum í leiknum, enda meiðslalisti Stjörnunnar langur. „Við erum með sjö menn meidda og ég var smá hræddur um að það myndi vanta upp á kraftinn undir lokin. En þeir höfðu gaman að þessu og sýndu vilja.“ Rúnar er ánægður með framfarirnar sem Stjörnumenn hafa sýnt að undanförnu. „Þetta var ekkert heppnisstig. Við unnum fyrir þessu. Það er eitthvað að verða til og þetta er fínt,“ sagði Rúnar. Hans menn mæta Haukum í síðasta leiknum fyrir jólafrí. „Það var fínt að fá einn af þessum sjö meiddu inn í hópinn fyrir næsta leik á móti Haukum. Og ætli við verðum ekki fyrsta liðið sem vinnur þá,“ sagði Rúnar og glotti.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira