Skemmtistaðir, hótelgluggar og vinnustaðir eru líka vinsælir kostir ef marka má lesendur Makamála. Það kemur örlítið á óvart að níu prósent sögðu mest spennandi að stunda kynlíf, það þarf þó ekki að þýða samfarir, í bíó eða leikhúsi. Það er greinilega ýmislegt sem gerist í myrkum sal fullum af fólki.
Hvort sem fólk er haldið svokallaðri sýniþörf þá virðist þessi þörf eða löngun vera nokkuð algeng meðal fólks. Að vera á almannafæri er í raun allir staðir fyrir utan veggja heimilisins og kynlíf þarf ekki bara að eiga við um samfarir. Vinsælustu staðirnir hjá lesendum okkar eru bílar, úti í náttúrinni, skemmtistaðir, hótelgluggar og vinnustaðir.
Eins og við höfum fjallað um hér á Makamálum er kynlíf á almannafæri eitt algengasta blætið tengt kynlífi. Síðasta könnun okkar sýndi einmitt að flestir lesendur höfðu prófað það og þeir sem höfðu ekki gert það áður höfðu flestir áhuga á að prófa það.
Ása Ninna mætti í Brennsluna í morgun og ræddi niðurstöðurnar.
Niðurstöður*:
Að vera á almannafæri er í raun allir staðir fyrir utan veggja heimilisins og kynlíf þarf ekki bara að eiga við um samfarir.Í bíl – 13 %
Úti í náttúrunni – 12 %
Í hótelglugga – 11 %
Á vinnustað – 11 %
Á skemmtistað – 10 %
Í bíó/leikhúsi – 9 %
Í búningsklefa/mátunarklefa – 7 %
Úti á svölum – 6 %
Í skóla/á bókasafni – 6 %
Í kirkju – 4 %
Á almenningssalerni - 4 %
Í sundi/náttúrulaugum – 3 %
Á veitingastað/Kaffihúsi – 2 %
Annar staður – 2 %
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.