Kynlíf

Kynlíf

Spurt og svarað og fréttir af öllu því sem við kemur kynlífi.

Fréttamynd

„Í einu til­viki var talað um nauðgunar­leik“

Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sleikbás, smokkar og sjóð­heitar skvísur

Þakið ætlaði að rifna af skemmtistaðnum Hax á föstudagskvöldið þegar Gerður Arinbjarnardóttir hélt upp á fimmtán ára afmæli kynlífstækjaverslunarinnar Blush. Margt var um manninn og stemningin mjög góð.

Lífið
Fréttamynd

Aug­lýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur

Kynlífstækjaverslunin Blush virðist hafa tekið vöru umdeildrar klámleikkonu úr sölu eftir að auglýsing á samfélagsmiðlum vakti hörð viðbrögð víða. Móðir sem fordæmdi söluna segir vörur sem þessar grafa undan kvenréttindum og senda skökk skilaboð út í samfélagið.

Lífið
Fréttamynd

FDA sam­þykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum

Lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur heimila notkun tveggja lyfja sem hafa reynst vel gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum sem valda kynsjúkdómnum lekanda. Greiningum hefur verið að fjölga og telja nú um 82 milljónir á heimsvísu en á sama tíma hefur ónæmi aukist verulega.

Erlent
Fréttamynd

Er hægt að njóta kyn­lífs þrátt fyrir mikla áfallasögu?

Spurning frá þrítugri konu: „Ég las grein þína um ógleðistilfinningu eftir kynlíf og spyr því, er hægt að læra að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Ég varð fyrir miklu ofbeldi sem barn og hefur það haft þær afleiðingar að ég er stöðugt að þóknast öðrum. Nú á ég mann sem ég elska, hann er góður í rúminu og við eigum gott kynlíf en ég velti því fyrir mér hvernig ég geti orðið heil að þessu leyti?”

Lífið
Fréttamynd

Ó­jöfn verka­skipting: Ég er út­keyrð og hef engan á­huga á kyn­lífi

Spurning frá 37 ára konu: „Sæl Aldís, ég og maðurinn minn eigum tvö börn saman. Ég er í fullu starfi og upplifi mig bera uppi meirihluta húsverkanna. Ekki bara húsverk heldur líka allt þetta ósýnilega. Ég er alltaf með hausinn fullan af to-do listum. Löngun mín í kynlíf hefur aldrei verið minni, ekki af því að ég vilji ekki manninn minn, heldur af því að ég er útkeyrð. Hann skilur þetta ekki alveg og upplifir að ég hafi misst áhugann á honum. Hvernig útskýri ég fyrir honum að verkaskiptingin og endalausi to-do listinn hefur áhrif á kynlöngun mína og hvað getum við gert í þessu saman?”

Lífið
Fréttamynd

Langar að prófa „anal“ en er stressuð

Þrítug kona sendi inn spurningu: „Mig langar að prófa „anal“, en ég er eitthvað svakalega stressuð fyrir því. Ég sé einhvern veginn bara talað um karlmenn sem viðtakendur og „pegging“ en aldrei eitthvað um að konur séu að gera það á jákvæðan hátt. Ég er búin að mikla þetta svo mikið fyrir mér.“

Lífið
Fréttamynd

Tíu stellingar sem örva G-blettinn

Talið er að aðeins átján prósent kvenna fái fullnægingu við samfarir án örvunar á sníp. Með sjálfskoðun og markvissri örvun á G-blettinum má auka líkurnar á fullnægingu í gegnum leggöng, þar á meðal er hægt að prófa mismunandi kynlífsstellingar. 

Lífið
Fréttamynd

Hefur engan kyn­ferðis­legan á­huga á óléttri konu sinni

Spurning barst frá 33 ára karli: „Ég er í smá klemmu þessa daganna. Konan mín er ólétt og komin vel á leið með meðgönguna. Ég elska hana og við erum hamingjusöm. Vandamálið er hins vegar að eftir því sem liðið hefur lengra á meðgönguna er ég minna og minna til í að stunda kynlíf. Ég veit ekki hvað er að mér en löngunin er bara engan veginn til staðar lengur. Er þetta eitthvað sem aðrir makar þekkja og ætli það séu til góð ráð?” 

Lífið
Fréttamynd

Svona er kynlífsþjónusta á Ís­landi

Í gær, 1. nóvember, var haldin ráðstefna um sögur kynlífsverkafólks og opinbera stefnu. Rauða Regnhlífin, Old Pros, Strip Lab, Red Umbrella Sweden og PION stóðu að baki ráðstefnunnar. Þar var umræðan um afglæpavæðingu áberandi en einnig var ljósi varpað á reynslu einstaklinga sem starfa í kynlífsþjónustu hér á landi.

Lífið
Fréttamynd

„Fötlun fyrir marga að vera með lítið typpi“

Lýtalæknir sem sérhæfir sig í kynfærauppbyggingu framkvæmir eina til tvær typpastækkanir á mánuði. Litlum eða gröfnum typpum geta fylgt vandamál tengd hreinlæti, þvagláti og kynlífi. Margir upplifi lítið typpi sem fötlun.

Lífið
Fréttamynd

Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elsk­huga

„Þegar ég var síðast í sambandi, fyrir tuttugu árum, upplifði ég mikla ástarsorg. Ég hugsaði að ég gæti ekki gengið í gegnum þetta aftur. Ég upplifði svona sjálfheldu—ég gat hvorki verið án kærustunnar né verið með henni. Þetta bjó til rosalega djúpt sár hjá mér, svo þurfti ég bara að face-a þetta sár. Ég var bara hræddur við mínar eigin tilfinningar,“ segir Helgi Jean Classen, hlaðvarpsstjórnandi og áhrifavaldur.

Lífið
Fréttamynd

Hvernig getur kona sem er komin í tíða­hvörf fundið neistann til að stunda kyn­líf aftur?

Spurning barst frá 55 ára konu: „Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? Ég er að taka breytingaskeiðsþrennuna þ.e. Estrogel, testogel og utrogestan. En það er voða lítið að gerast hvað kynlífið varðar en mér var sagt af lækni að testogelið myndi boosta upp kynlöngunina hjá mér. En það hefur enn ekki gerst.“

Lífið