Konan sem fannst í sjónum í Tromsø er látin Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2019 07:50 Móðirin og stúlkurnar eru allar erlendir ríkisborgarar. Getty
Kona á þrítugsaldri og stúlka á grunnskólaaldri sem fundust í sjónum við Tromsø í gærkvöldi eru látnar. Tvær stúlkur sem fundust í sjónum á sama stað hafa verið fluttar á Ríkissjúkrahúsið í höfuðborginni Osló, en báðar eru þær í lífshættu. Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöldi að vegfarendur hafi komið að barnavagni við ströndina við Fagereng og að fótspor í snjónum hefðu leitt niður að sjó. Þar hafi stigvél fundist. Björgunarlið fann svo fólkið í sjónum þar sem ekkert þeirra var með lífsmarki. Endurlífgun var þá reynd, en greint var frá því í gærkvöldi að ein stúlknanna hafi þá verið úrskurðuð látin. Í morgun var svo tilkynnt að móðirin hafi einnig látið lífið. Móðirin og stúlkurnar eru allar erlendir ríkisborgarar að því er fram kemur í frétt NRK.Tromsø í Norður-Noregi.GettyLögregla hefur greint frá því að hún verið í samskiptum við föður stúlknanna og hefur hann stöðu vitnis í málinu. Lögregla heldur annan blaðamannafund vegna málsins klukkan níu að íslenskum tíma. Umfangsmikil björgunaraðgerð fór fram eftir að fólkið fannst þar sem notast var við kafara og þyrlur til að leita af sér grun um hvort að fleira fólk væri í sjónum. Lögreglustjórinn í Tromsø, Anita Hermandsen, segir of snemmt að segja til um hvort að um slys hafi verið að ræða eða hvort að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Noregur Tengdar fréttir Eitt barn látið: Kona og þrjú börn fundust í sjónum við Noreg Vegfarandi hafði séð slóð frá barnavagni á ströndinni og út í sjó og lét lögreglu vita. 2. desember 2019 20:32 Mest lesið Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Innlent Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Sjá meira
Eitt barn látið: Kona og þrjú börn fundust í sjónum við Noreg Vegfarandi hafði séð slóð frá barnavagni á ströndinni og út í sjó og lét lögreglu vita. 2. desember 2019 20:32