Nýliðarnir stigi frá Meistaradeildarsæti, Wolves aftur á sigurbraut og annar sigur Burnley í röð Anton Ingi Leifsson skrifar 21. desember 2019 16:45 Sheffield United er spútniklið vetrarins. vísir/getty Jóhann Berg Guðmundsson var áfram á meiðslalistanum hjá Burnley er liðið vann 1-0 sigur á Bournemouth útivelli. Fyrsta og eina mark leiksins gerði Jay Rodriguez á 89. mínútu en Burnley fór upp í tíunda sætið með sigrinum. Bournemouth er hins vegar í 14. sætinu. Gott gengi Wolves heldur áfram en í dag vann liðið 2-1 sigur á Norwich á útivelli. Todd Cantwell kom Norwich yfir en sitthvort markið í síðari hálfleik frá Romain Saiss og Raul Jimenez tryggðu Wolves sigur. Raul Jimenez is the second player to reach PL goals for @Wolves after Steven Fletcher (22) pic.twitter.com/JRSPkzDNXT— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) December 21, 2019 Wolves er í 6. sæti deildarinar með 27 stig en liðið er einungis tveimur stigum frá Chelsea sem er í fjórða sætinu. Norwich er hins vegar á botninum með níu stig eftir sautján leiki. Nýliðar Sheffield United eru í 5. sæti deildarinnar eftir 1-0 sigur á Brighton á útivelli. Sigurmarkið skoraði fyrrum samherij Gylfa Sigurðssonar hjá Swansea, Oliver McBurnie, en markið kom í fyrri hálfleik.FT Brighton 0-1 Sheffield Utd It's another three points for Sheffield United thanks to Oli McBurnie's winner. Live reaction https://t.co/mRBCpfl0w8#bbcfootballpic.twitter.com/uBlOMQs0fE— BBC Sport (@BBCSport) December 21, 2019 Sheffield eins og áður segir í 5. sæti deildarinnar, stigi á eftir Chelsea í fjórða sætinu, en Brighton er í 13. sætinu með 20 stig. Enski boltinn