Erlent

Einn for­vera Tegnell segir að ná­granna­löndin muni á endanum ná Sví­þjóð

Atli Ísleifsson skrifar
Johan Giesecke gegndi starfi sóttvarnalæknis Svíþjóðar á árunum 1995 til 2005.
Johan Giesecke gegndi starfi sóttvarnalæknis Svíþjóðar á árunum 1995 til 2005. Skjáskot

Alls eru nú 3.175 dauðsföll rakin til Covid-19 í Svíþjóð og fjölgaði þeim um 135 síðasta sólarhringinn. Þetta var tilkynnt í hádeginu. 

Dauðföll hafa verið margfalt fleiri í Svíþjóð en í nágrannalöndunum Noregi, Danmörku og Finnlandi, en sænsk stjórnvöld hafa beitt allt öðrum aðferðum í baráttu sinni við veiruna.

Johan Giesecke, fyrrverandi sóttvarnalæknir Svíþjóðar og þar með einn forvera hins umdeilda Anders Tegnell, segir Svía þó hafa beitt hárréttum aðferðum og spáir að eftir um ár verði Norðmenn, Danir og Finnar búnir að ná Svíum þegar kemur að fjölda dauðsfalla vegna kórónuveirunnar.

Rétt að bíða með samanburð í eitt ár

Giesecke segir í samtali við Dagens Nyheter að rétt sé að bíða í um ár með að bera saman fjölda dauðsfalla milli landa.

Hann segist nýlega hafa verið í sambandi við Mika Salminen, sóttvarnalækni Finnlands, en Finnum hefur til þessa tekist að koma í veg fyrir mikinn fjölda dauðsfalla. En það þýði jafnframt að fáir Finnar hafi komist í tæri við veiruna.

„Þeir eru með stóran hluta þjóðarinnar sem verður móttækilegur fyrir sjúkdómnum í haust. Og hann hefur miklar áhyggjur af því hvað gerist þá, þegar byrjað verður að slaka á takmörkunum. Það er þá sem fólk deyr. Þeir munu ná okkur, og það á líka við um Danmörku og Noreg,“ segir Giesecke.

Anders Tegnell er núverandi sóttvarnalæknir Svíþjóðar. Þrátt fyrir umdeildar aðferðir nýtur hann mikils stuðnings meðal sænsks almennings samkvæmt könnunum.EPA

Hvað gera Nýsjálendingar svo?

Giesecke segist mikill talsmaður sænsku leiðarinnar og að Svíar séu nú í bestri aðstöðu allra í heiminum vegna þeirra aðferða sem þeir hafa beitt. Hann ber Sviþjóð saman við Nýsjálendinga þar sem markmiðið hefur verið að útrýma veirunni. Hann spyr hins vegar hvað þeir ætli að gera svo.

„Það þýðir að allir þeir sem ferðast til Nýja-Sjálands muni koma til með að þurfa að fara í fjórtán daga sóttkví. Komi ekki til öflugt bóluefni munu líða áratugir þar til að hægt sé að breyta því.“

Giesecke villa meina að allir muni fyrr eða síðar fá Covid-19 og ekki sé hægt að hefta útbreiðsluna. Því komi dauðsföllin til með að verða svipað mörg, miðað við höfðatölu, í öllum löndum. Þau lönd sem hafi lokast standi því frammi fyrir miklum fjölda dauðsfalla seinni hluta ársins og því næsta.

Johan Giesecke gegndi starfi sóttvarnalæknis Svíþjóðar á árunum 1995 til 2005.


Tengdar fréttir

Annars konar aðgerðir Svíþjóðar virðast kosta mannslíf

Yfirvöld Svíþjóðar hafa gripið til töluvert öðruvísi aðgerða en yfirvöld annarra landa Skandinavíu vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Ekki hefur verið gripið til umfangsmikillar félagsforðunar þar í landi.

Fórnar­kostnaður Svíanna greini­lega mjög mikill

Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og fyrrverandi landlæknir, telur ljóst að fórnarkostnaður yfirvalda í Svíþjóð í baráttunni við faraldur kórónuveiru sé mjög mikill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×