Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum. Menning 8.10.2026 11:02
Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Menning 8.10.2026 10:30
Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Karlmaður á sextugsaldri er í haldi sænsku lögreglunnar grunaður um að hafa stungið konu sem var einnig á sextugsaldri til bana fyrir utan matvöruverslun í Malmö í morgun. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og ná af honum hnífi. Erlent 7.10.2026 13:16
Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Erlent 2. október 2026 09:40
Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Svör þeirra skera sig einnig úr þegar kemur að spurningum um lýðræði. Innlent 2. október 2026 06:02
Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum. Erlent 29. september 2026 22:43
Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í gær endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén fundar á morgun með formönnum flokka til að afhenda nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboðið. Erlent 29. september 2026 07:25
Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu Jafnaðarmanna að þingforseta. Þess í stað ákvað flokkurinn að styðja tillögu hægriflokka að þingforseta. Erlent 28. september 2026 08:03
Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir. Erlent 26. september 2026 22:33
Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina. Erlent 24. september 2026 08:48
„Þetta snýst um líf og dauða“ Sænsk-samíska kvikmyndagerðarkonan Amanda Kernell er meðal erlendra gesta Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF). Hún kemur til landsins beint frá Toronto eftir heimsfrumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni Með frost í hjarta þar sem hún fékk dómnefndarverðlaun. Aðspurð segir hún að þó umfjöllunarefnið sé nýtt hverju sinni þá tengi dramatískir þræðir myndir sínar; leyndarmál innan fjölskyldunnar, og konur sem taka róttækar ákvarðanir koma oftar en ekki við sögu. Bíó og sjónvarp 23. september 2026 20:04
Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það. Erlent 22. september 2026 14:28
Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum. Erlent 22. september 2026 07:37
Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. Innlent 22. september 2026 06:41
Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764. Erlent 19. september 2026 09:35
Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Magdalena Andersson, leiðtogi Sósíaldemókrata í Svíþjóð, hefur fengið umboð til þess að mynda nýja ríkisstjórn Svía eftir að flokkurinn sigraði í þingkosningum um síðustu helgi. Ulf Kristersson sagði af sér sem forsætisráðherra í gær. Erlent 18. september 2026 15:43
Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Leiðtogi fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata heldur því fram að velgengni Vinstriflokksins í þingkosningum um síðustu helgi hafi verið vegna „íslamista“. Svíþjóðardemókratar töpuðu fylgi í fyrsta skipti. Erlent 18. september 2026 10:49
Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, segist vilja fara með Svíþjóð í nýja átt sem kjósendur völdu í kosningum um helgina. Hún leggur áherslu á loftslags-, mennta-, heilbrigðis- og öldrunarmál. Erlent 17. september 2026 14:24
Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin Sigur stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð var endanlega staðfestur þegar lokið var við að telja öll atkvæði í dag. Ulf Kristersson, forsætisráðherra, tilkynnti um afsögn sína í kjölfarið. Erlent 17. september 2026 11:39
Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Fulltrúar Interpol handtóku Ali Namdar, einn leiðtoga Foxtrot-glæpasamtakanna í Svíþjóð, í Marokkó í gær. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um fjölda ofbeldisverka, þar á meðal sprengju- og skotárásir á Norðurlöndunum. Erlent 17. september 2026 09:32
Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Sigur stjórnarandstöðuflokkanna í Svíþjóð virðist vera í höfn að mati sænska ríkisútvarpsins miðað við niðurstöður úr utankjörfundaratkvæðagreiðslu í þingkosningunum. Afar mjótt var á munum. Erlent 16. september 2026 21:32
Hafna viðræðum til hægri Á morgun verður lokaniðurstaða þingkosningana í Svíþjóð ljós en óformlegar þreifingar formanna flokka eru þó þegar hafnar. Miðflokkurinn hafnaði í gær viðræðum við flokk núverandi forsætisráðherra og sagði hann hafa tapað kosningunum. Erlent 15. september 2026 08:03
Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Allt útlit er fyrir að ríkisstjórn hægri manna í Svíþjóð sé fallin en endanleg niðurstaða þingskosninganna í gær verður þó ekki ljós fyrr en síðar í vikunni. Stjórnmálafræðingur við Háskólann í Malmö segir að framundan sé stjórnarmyndunarmaraþon. Erlent 14. september 2026 12:32
Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Niðurstöður þingkosninga í Svíþjóð eru enn óráðnar en flest bendir þó til þess að ríkisstjórn hægri manna sé fallin. Óljóst er þó hvernig stjórnarandstaðan ætlar að setja saman ríkisstjórn og stjórnmálaskýrandi sænska ríkissjónvarpsins segir að framundan sé langt pólitískt haust. Erlent 14. september 2026 07:42