Helena einhenta, fjarkennsla og söngvakeppnin í Rotterdam Rakel Sveinsdóttir skrifar 4. apríl 2020 10:00 Þessa helgina ákváðum við að heyra í Íslending sem starfar og býr erlendis. Reynir Þór Eggertsson, lektor við háskólann í Helsinki er gestur kaffispjallsins í þetta sinn.
Síðustu vikur höfum við heyrt um fjöldann allan af Íslendingum að koma heim vegna kórónuveirunnar. En það á alls ekki við um alla því margir Íslendingar starfa erlendis. Reynir Þór Eggertsson er einn þeirra. Hann er búsettur í Helsinki þar sem hann starfar sem lektor við Háskólann í Helsinki. Samhliða kennslunni vinnur Reynir Þór að bók um gerð miðaldarkvæðis um Helenu einhentu. Reynir Þór þekkja margir sem einn helsta Eurovision sérfræðing landsins. Hann bendir á ástralska samninginn sem leið sem söngvakeppnin hefði getað nýtt sér til að falla ekki alveg frá áformum um einhvers konar keppni í ár. Reynir Þór er gestur okkar í kaffispjalli helgarinnar þar sem við spyrjum fólk alltaf um það hvenær það vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um vinnuna og skipulagið. Morgunúfið hár í fjarkennslu Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég er algjör B-manneskja svo að það er nokkuð misjafnt hvenær ég vakna. Best finnst mér að vakna svona upp úr klukkan 9 svo að ég sé kominn í gang um 10 leytið. Helst vil ég byrja að kenna klukkan 10, en suma daga byrja ég 8.15 eða 9.15 og þá vakna ég rétt um 7 eða að nálgast 8.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Snúsa vekjaraklukkunni aðeins meðan ég sannfæri mig um það að rétt sé að koma mér á fætur. Þessar vikurnar þegar ég kenni heima þá velti ég því oft fyrir mér hvort nemendur mínir þoli morgunúfið hárið eða ekki á skjánum hjá sér.“ Voru viðbrögð menntakerfisins þar eitthvað sambærileg og á Íslandi? „Að mörgu leyti svipuð í framhalds- og háskólum. Hér fer öll kennsla á þessum stigum fram á netinu og hefur bara reynst nokkuð vel, að minnsta kosti í bóknámi. Leikskólum og grunnskólum hefur aftur á móti verið lokað algjörlega, nema fyrir börn þess starfsfólks sem heldur samfélaginu gangandi. Þetta á við upp í 3. bekk, sem er 4. bekkur á Íslandi. Í efri bekkjum fer kennsla fram á netinu, og svo líka gagnvart þeim yngri börnum sem ekki fá að fara í skólann.“ Tómlegt í göngutúr í hverfinu í Helsinki þar sem Reynir Þór býr. Hann segir að töluvert hafi reynt á við að koma allri kennslu á netið en það hafi þó gengið vel og allt að komast í fastar skorður í fjarkennslu.Vísir/Aðsent Rannsóknarstörf og kennsla Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Talsverður tími hefur farið í skipulagsbreytingar á kennslunni vegna ástandsins, en það er að jafna sig, en ég er enn að velta fyrir mér hvernig best sé að hafa lokapróf í íslenskunámskeiðunum mínum. Þá er ég að reyna að klára lokauppkast að bók upp úr doktorsverkefninu mínu sem vonandi kemur út í náinni framtíð. Þetta er bók um danskar og íslenskar gerðir fransks miðaldakvæðis um Helenu einhentu.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Föstu kennslustundirnar á kennslutímanum leggja línurnar fyrir vikuna hvar undirbúningur kennslu og yfirferð verkefna lendir. Ég legg mikið upp úr því að fara fljótt og vel yfir verkefni frá nemendum, svo að þeir hafi góðan tíma til úrvinnslu á mínum athugasemdum. Þá þarf ég að huga að rannsóknartíma og almennri skrifstofuvinnu sem fylgir starfinu, að koma því þannig að tíminn nýtist bæði vel og skipulega. Ég hef venjulega einn kennslulausan dag á viku og hann nýtist einna best í rannsóknarstörfin og svo auðvitað tímabilin þar sem engin kennsla fer fram.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Venjulega um klukkan eitt, nema ég þurfi að vakna sjö, þá reyni ég að sofna um miðnætti.“ Söngvakeppnin í vor hefði verið möguleg Það liggur í augum uppi að við kveðjum ekki þennan gest okkar, án þess að ræða aðeins um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Við spyrjum Reynir Þór hvað honum finnist um að hún hafi verið blásin af. Reynir Þór er þeirrar skoðunar að það hefði verið hægt að standa fyrir einhvers konar söngvakeppni 2020. „Ég er auðvitað bara miður mín út af ástandinu í heiminum öllum og í því stóra samhengi er Söngvakeppnin algjört aukaatriði. Mér finnst þó leiðinlegt að ekki hafi verið fundin önnur lausn á málinu en að aflýsa keppninni algjörlega. Það hefði til dæmis alveg verið hægt að nota einhvers konar grænskjá og varpa öllum keppendum úr heimalandinu á sviðið í Rotterdam og hafa kosningu en um leið semja um að keppnin á næsta ári færi fram í Rotterdam óháð sigurvegara 2020 og þá í einhvers konar sambærilegu samstarfi og er í samningnum við Ástralíu almennt.“
Kaffispjallið Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Konan með kórónu-húmorinn reynir að fela ógreitt hárið á morgnana Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum. Þessa helgina er rætt við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasögu- og handritstöfund, teiknara, rithöfund og konuna á bakvið óborganlegan húmor Lóuboratoríum myndasögunnar. 28. mars 2020 10:00 Er í smitrakningarteyminu en bíður spenntur eftir því að mega knúsa á ný Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum og að þessu sinni er viðmælandinn einn þeirra sem kallaður var til í smitrakningarteymið, Gestur K. Pálmason. 21. mars 2020 10:00 Ræsir yngstu börnin með tónlist og mikið að gera í kjölfar kórónuveirunnar Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tekur kaffispjallið með okkur þennan laugardagsmorgunn. Þétt vinnuvika er að baki hér á Íslandi þar sem hver dagur var nýttur til hins ítrasta í fundi og samningagerð. 14. mars 2020 09:29 Sér fyrir sér góðan dag þar sem verkefnin leysast farsællega Í kaffispjalli um helgar fáum við innsýn í líf og starf fólks sem vinnur í ólíkum störfum. Víðir Þór Þrastarson heilsu- og einkaþjálfari í World Class gefur án efa mörgum góðar hugmyndir um heilbrigðan lífstíl um leið og hann lýsir dæmigerðum vinnudegi hjá sér. 7. mars 2020 10:00 Mest lesið Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ „Breytingaskeið kvenna hefur líka áhrif á karlavinnustaði“ „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Sjá meira
Konan með kórónu-húmorinn reynir að fela ógreitt hárið á morgnana Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum. Þessa helgina er rætt við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasögu- og handritstöfund, teiknara, rithöfund og konuna á bakvið óborganlegan húmor Lóuboratoríum myndasögunnar. 28. mars 2020 10:00
Er í smitrakningarteyminu en bíður spenntur eftir því að mega knúsa á ný Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum og að þessu sinni er viðmælandinn einn þeirra sem kallaður var til í smitrakningarteymið, Gestur K. Pálmason. 21. mars 2020 10:00
Ræsir yngstu börnin með tónlist og mikið að gera í kjölfar kórónuveirunnar Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir tekur kaffispjallið með okkur þennan laugardagsmorgunn. Þétt vinnuvika er að baki hér á Íslandi þar sem hver dagur var nýttur til hins ítrasta í fundi og samningagerð. 14. mars 2020 09:29
Sér fyrir sér góðan dag þar sem verkefnin leysast farsællega Í kaffispjalli um helgar fáum við innsýn í líf og starf fólks sem vinnur í ólíkum störfum. Víðir Þór Þrastarson heilsu- og einkaþjálfari í World Class gefur án efa mörgum góðar hugmyndir um heilbrigðan lífstíl um leið og hann lýsir dæmigerðum vinnudegi hjá sér. 7. mars 2020 10:00