Einungis átta ný smit skráð í Kína síðasta sólarhringinn Atli Ísleifsson skrifar 13. mars 2020 09:49 Alls hafa 88 manns komið erlendis frá og greinst með smit í Kína. Hafa yfirvöld áhyggjur af því að tilvik sem þessi skemmi fyrir þeim árangri sem hefur náðst í landinu við að hefta útbreiðsluna. Getty
Einungis átta ný kórónuveirusmit hafa verið skráð í Kína síðasta sólarhringinn. Um er að ræða lægsta fjöldann frá því að yfirvöld í landinu hófu að greina frá umfangi útbreiðslu veirunnar. Erlendir fjölmiðlar greina frá því í morgun í Kína að af þessum átta hafi fimm manns smitast í Wuhan-borg í Kína og þrír komið til landsins eftir að hafa smitast erlendis. Síðasta sólarhringinn hafa svo sjö manns látið lífið af völdum veirunnar. Alls hafa um 81 þúsund smitast af kórónuveiru í Kína og tæplega 3.200 manns látið lífið. Alls hafa 88 manns komið erlendis frá og greinst með smit í Kína. Hafa yfirvöld áhyggjur af því að tilvik sem þessi skemmi fyrir þeim árangri sem hefur náðst í landinu við að hefta útbreiðsluna. Yfirvöld í Hubei-héraði byrjuðu fyrr í vikunni að draga eitthvað úr þeim hömlum sem settar voru á samfélagið til að hefta útbreiðsluna. Um 56 milljónir manna hafa þar verið í sóttkví frá lokum janúarmánaðar. Sömuleiðis hafa borist fréttir af því að dregið hafi úr fjölgun tilfella í Suður-Kóreu, þar sem alls 7.900 manns hafa smitast og 67 týnt lífi vegna veirunnar. Fyrsta staðfesta kórónuveirusmitið rakið aftur til 17. nóvember
Wuhan-veiran Kína Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira