Innlent

Bein út­sending: Hildur svarar fyrir upp­sagnir

Tómas Arnar Þorláksson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur.
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur. Vísir/Lýður

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, ræðir við fréttastofu í beinni útsendingu í ráðhúsi Reykjavíkur um uppsagnir og hagræðingar dagsins. Þegar aðgerðum sem voru tilkynntar á lokuðum aukafundi borgarstjórnar í morgun verður lokið mun Hildur tjá sig um málið.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem send var á fjölmiðla nú síðdegis segir að stöðugildum hjá Reykjavíkurborg hafi verið fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fái beina uppsögn, en að um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda.

Fylgst var með nýjustu vendingum í vaktinni hér fyrir neðan.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.


Tengdar fréttir

Fleiri upp­sagnir og óvissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×