Lífið

Svona grillar maður bjórkjúkling

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð er mikill meistari á grillinu.
Alfreð er mikill meistari á grillinu.

Grindvíkingurinn Alfreð Fannar Björnsson er án efa mesti dellumaður landsins, tekur allt með trompi hvort sem það snýr að veiðinni, bílasprautun eða öðru.

Og er nýjasta æðið hans að grilla. Og þá þýðir ekkert að eiga eitt grill, heldur á Alfreð sex grill.

Hann hefur vakið svo mikla athygli á Instagram fyrir eldamennsku að nú er hann kominn með sex þátta seríu, BBQ kóngurinn, sem fór af stað á dögunum á Stöð 2.

Í þættinum í gær sýndi Alfreð hvernig best sé að matreiða og grilla bjórkjúkling á mjög einfaldan máta en þá er bjórdós einfaldlega komið fyrir inni í kjúklingnum á grillinu.

Klippa: Svona grillar maður bjórkjúkling





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.