Lífið

Biðjast loksins forláts eftir erfiða bið vegna Covid-19

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
VHS á ferð og flugi
VHS á ferð og flugi

Vilhelm Neto, Stefán Ingvar og Hákon Örn frumsýna annað kvöld glænýtt uppistand, VHS biðst forláts. Uppistandshópurinn, sem kallar sig einfaldlega VHS, þurfti að fresta frumsýningunni vegna kórónuveirunnar en geta nú „loksins“ deilt gríninu með öðrum. Þeir voru uggandi um framhaldið en „koma nú endurnærðir til leiks“ á ný.

„Í þetta sinn er það ætlun VHS að sprengja alla skala, væntingar og öll þök af öllum húsum og biðjast auðmjúklega forláts skyldi það ekki ganga eftir.“

Hópurinn kom eins og stormsveipur í íslenskt grín þegar fyrsta sýning þeirra, Endurmenntun, gekk fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó og á Kex hostel og var í kjölfarið sýnd víðs vegar um landið. Hópurinn stóð einnig að tveimur tilraunauppistöndum í Tjarnarbíó í janúar 2020 ásamt Fyndnustu mínum, Jakobi Birgis og Andra Ívars.

VHS ætlar að sprengja alla skala með nýju uppistandi.

Topp fimm í heiminum

„Við þurftum að skella í lás vegna heimsfaraldursins eftir að hafa hlakkað til frumsýningar í marga mánuði. Það var mesta sorgarstund lífs míns. Það er gleði og dúndurspenna í okkur nú þegar við fáum loksins að sýna,“ segir Villi.

„Við byrjuðum að skrifa sýninguna í janúar, þegar við héldum viðburðinn Nýtt ár, nýtt grín í Tjarnarbíó. Þar var hópurinn að prófa brandara í nýju sýninguna. Það er miskunnarlaust að prufa brandara í fyrsta sinn fyrir framan áhorfendur en það borgaði sig í þessu tilviki,“ segir Hákon.

„Það er sannur heiður að skipa fyndnasta grínhóp Íslands með vinum sínum og jafnframt einn af fimm fyndnustu grínhópum heims,“ segir Stefán að lokum. Nánari upplýsingar má finna á Facebook en sýningarnar fara fram 4. júlí, 25. júlí og 15. ágúst. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.