Innlent

Biskup braut jafnréttislög

Sylvía Hall skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir biskup.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup. Vísir/Baldur

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að biskup Íslands hafi brotið jafnréttislög þegar karl var skipaður í embætti sóknarprests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Ursula Árnadóttir, sem kærði ráðninguna var á meðal þriggja umsækjenda og jafnframt eina konan sem sótti um embættið.

Staðan var auglýst til umsóknar þann 27. maí á síðasta ári og var skipað í stöðuna þann 30. ágúst. Ursula kærði ráðninguna þann 26. febrúar síðastliðinn.

Í umsóknarferlinu voru umsækjendur boðaðir á fund sautján manna kjörnefndar prestakallsins sem á endanum greiddi atkvæði. Atkvæðagreiðslan var leynileg en sá sem hlaut skipunina fékk fjórtán, Ursula tvö og þriðji umsækjandinn eitt atkvæði.

Í ítarlegri samantekt þriggja manna matsnefndar var niðurstaðan sú að Ursula hefði verið hæfasti umsækjandinn. Það hafi því verið leiddar nægar líkur að því að henni hefði verið mismunað á grundvelli kyns við ráðninguna þar sem ekki hafi tekist að sýna fram á aðrar ástæður fyrir mismununinni.

Þjóðkirkjan tekur úrskurðinum alvarlega 

Í yfirlýsingu frá Þjóðkirkjunni vegna málsins segir að úrskurðinn megi túlka á þann veg að núverandi starfsreglur standist ekki jafnréttislög. Því muni biskup reyna að koma því til leiðar að breytingar verði á starfsreglum, enda sé mikilvægt að kirkjan fari eftir jafnréttislögum.

Þá segir í yfirlýsingunni að úrskurðinum sé tekið alvarlega og af auðmýkt og kirkjan ætli sér að draga lærdóm af málinu. Verkferlar og starfsreglur verði endurskoðaðar líkt og áður sagði og jafnréttisfulltrúi muni, ásamt jafnréttisnefnd, rýna úrskurðinn og koma með tillögur að úrbótum.

Kirkjuþing kemur saman í september og þá fyrst verði hægt að koma breytingum í framkvæmd.

„Niðurstaða kærunefndar jafnréttismála er biskupi Íslands þungbær. Varðandi þetta mál er hugur biskups Íslands hjá sr. Ursulu Árnadóttur og mun kalla hana á sinn fund til að ræða framhaldið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×