Páll Gíslason: Ætla að halda með FH í bikarnum þetta árið Ísak Hallmundarson skrifar 30. júlí 2020 20:19 Páll var bara brattur að leik loknum. vísir/s2s
FH vann Þór frá Akureyri 3-1 í Kaplakrika í kvöld í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. ,,Ég er mjög sáttur við frammistöðu Þórsliðsins í dag, þegar ég miða við síðasta leik sem við töpuðum illa. Mér fannst úrslitin bregðast vel við í dag og við gátum skorað mörk í dag, skoruðum eitt. Við vorum gjafmildir á mörkin sem við fengum á okkur eins og flestir sáu og mér fannst dómarinn líka gjafmildur. Í upphafi seinni hálfleiks áttum við að jafna, þá veit enginn hvað hefði gerst vegna þess að við vorum flottir og aggresívir og þéttir, ég er fyrst og fremst svekktur að hafa ekki náð að jafna en á móti kemur að frammistaðan stendur upp úr. Ég var sáttur með liðsframmistöðu Þórs í dag,‘‘ voru fyrstu viðbrögð Páls Gíslasonar þjálfara Þórs eftir leik. Páll gaf lítið fyrir vítaspyrnudóminn í seinni hálfleik en segir hann ekki hafa ráðið úrslitum. ,,Við vorum hættulegir í mörgum sóknaraðgerðum og áttum fínustu möguleika á því að skora mark, ef við hefðum jafnað hefðum við eflaust fuðrast upp og barið okkur meira á brjóst en fáum mark á okkur, að mínu viti galin dómur. Bananabolti lengst upp í loft, enginn að reyna við hann, allir að hlaupa til baka og markvörðurinn grípur hann. Svo kemur eitthvað djók peysutog sem hefur engin áhrif á leikinn. Þetta réði kannski ekki úrslitum en þetta hefði verið geggjaður leikur ef við hefðum ekki ásamt fleirum verið svona gjafmildir.‘‘ ,,Ég er sáttari að fara í ferðalagið heim eftir þetta tap heldur en í síðustu umferð. Ég er svekktur að hafa tapað leiknum en FH er með öflugt lið og ég ætla að halda með þeim í bikarkeppni KSÍ þetta árið,‘‘ sagði Palli léttur að lokum.
Mjólkurbikarinn Þór Akureyri Mest lesið Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Körfubolti Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Íslenski boltinn Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Körfubolti Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla Enski boltinn Í beinni: Liverpool - Brighton | Komast Poolarar á toppinn? Enski boltinn Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Íslenski boltinn Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl Fótbolti Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið Enski boltinn Í beinni: Bournemouth - Man. City | Meistararnir á flugi Enski boltinn Tyson hafnar því að hann borði hrátt kjöt Sport Fleiri fréttir Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Haraldur hættir hjá Víkingi Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Alexander endurnýjar kynnin við Óskar Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni Ákvörðun Ómars kom á óvart: „Þökkum honum fyrir ómetanlegt starf“ Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa líklega að treysta á lögreglu Matthías og Kristján taka við Valsliðinu Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Fótboltamamma Íslands í vanda: „Verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“ Eiður Aron riftir við Vestra Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“ Gylfi besti leikmaðurinn í Bestu deildinni samkvæmt tölfræðinni Valur staðfestir í annað sinn að Fanney Inga sé á leið til Svíþjóðar „Hefði verið ógeðslega tilfinning ef allt væri búið og maður væri kominn í frí“ Kristinn Jónsson kinnbeinsbrotinn og fékk heilahristing Túfa stýrir Val á næsta tímabili Fyrsta félagið í áratug sem vinnur hjá báðum kynjum Pétur hafi ekki verið rekinn: „Sameiginleg ákvörðun“ Myndasyrpa: Blikar fögnuðu titlinum með aðdáendum Býst við að hætta áður en VAR nær til Íslands Útiliðin hafa fagnað í öllum úrslitaleikjunum síðustu 26 ár „Ég hefði getað skorað átta eða níu mörk í þessum leik“ Einkunnir úr úrslitaleiknum: Magnaður Ísak Snær en Víkingar langt frá sínu besta Sjá meira