Áfram „sæmilega hófleg“ rigning Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. ágúst 2020 06:43 Haustveður í Reykjavík Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Veðrið sem varað var við í nótt fer nú að ganga niður en gular storm- og rigningarviðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi fram eftir morgni. Vindur blæs nokkuð hraustlega úr austri í fyrstu, einkum suðaustanlands, en snýst smám saman í heldur hægari suðlægar áttir. Þó rignir áfram nokkuð hressilega um austanvert landið fram undir hádegi en annars má búast við sæmilega hóflegri rigningu með köflum í flestum landshlutum í dag, síst þó um landið norðaustanvert. Seinnipartinn hlýnar norðan heiða þar sem búist er við að hiti nái um 16 stigum. Sunnanlands verður áfram heldur svalt. Næstu daga er útlit fyrir bitlausar suðlægar áttir og vætu hér og þar, en þurrt og bjart með köflum á Norðausturlandi og nokkuð hlýtt í veðri þar. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á fimmtudag: Suðlæg átt 5-13 m/s, hvassast suðvestantil. Dálítil væta með köflum og hiti 8 til 12 stig, en þurrt að mestu og bjart norðaustanlands með hita á bilinu 12 til 17 stig. Á föstudag:Fremur hæg breytileg átt. Dálítil væta vestantil, annars skýjað að mestu, en þurrt. Hiti víða 8 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Á laugardag: Vestlæg átt, 3-10. Allvíða skúrir, einkum síðdegis, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:Útlit fyrir suðlægar áttir með rigningu sunnan- og vestantil, annars þurrt og bjart með köflum. Hlýnandi veður norðan heiða, en heldur svalt syðra.
Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjá meira