Innlent

Endur­skoða orða­lag tveggja metra reglunnar í fyrra­málið

Sylvía Hall skrifar
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir orðalagið vera nokkuð strangt.
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir orðalagið vera nokkuð strangt.

Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir eðlilegt að fólk sem hittist reglulega hafi minna en tveggja metra fjarlægð á milli sín. Þó sé mikilvægt að fólk fari gætilega og sé ekki að „bæta inn í þann hóp“ um of. 

Í viðtali við Reykjavík síðdegis sagði Rögnvaldur orðalag reglunnar heldur strangt og það væri eitthvað sem þyrfti að skoða. Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, staðfestir í samtali við Vísi að stýrihópur mundi funda um málið í fyrramálið.

Undanfarna daga hefur lögregla heimsótt veitingahús og matsölustaði til þess að kanna hvort tveggja metra reglunni sé fylgt líkt og gert var í vor.

Greint var frá því í dag að mörgum lögreglumönnum þætti reglan nokkuð óskýr og sagði Rögnvaldur á upplýsingafundi almannavarna að orðalagið væri „kannski ekki alveg nógu heppilegt“. Fólk sem væri í „sama sóttvarnahólfi“ og í mikilli nálægð dagsdaglega væri almennt minna í því að viðhalda fjarlægðarmörkum.

Í auglýsingu um samkomutakmarkanir er reglan afmörkuð sérstaklega í fjórðu grein. Þar segir að reglunni skuli ávallt framfylgt en undantekningar eru gerðar fyrir fólk sem deilir heimili og það sama á við um starfsemi sem krefst frekari nálægðar, en þar er þó gerð krafa um grímunotkun.

„Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi […] skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki deila heimili. Í starfsemi sem eðlis síns vegna krefst meiri nálægðar en kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, á hárgreiðslustofum, nuddstofum og í almenningssamgöngum, skal nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn þar sem fjarlægð milli einstaklinga verður ekki viðkomið,“ segir í auglýsingunni.

Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir reglur og tilmæli vera stöðugt til endurskoðunar, enda sé nauðsynlegt að skilaboðin skili sér með skýrum hætti.

„Það er áríðandi að skilaboð sem við sendum frá okkur séu skýr. Eitt af því er meðal annars tveggja metra reglan. Stýrihópur kemur saman til fundar í fyrramálið þar sem þetta verður meðal annars rætt og þá hvort það sé eitthvað sem þurfi að breyta eða laga sem geri hlutina skýrari", segir Jóhann K. Jóhannsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×