Lífið

Páll Óskar fagnar fimmtugsafmælinu með stæl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Palli hefur verið í bransanum frá árinu 1990.
Palli hefur verið í bransanum frá árinu 1990. Mynd: ÓLÖF ERLA/SVART DESIGN

Páll Óskar Hjálmtýsson fagnar fimmtugsafmæli sínu með stórtónleikum í Háskólabíói 13. og 14. mars.

Páll hefur verið í framlínu íslenskra söngvara um áratuga skeið eða síðan hann tók þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna árið 1990.

„Ég get ekki beðið eftir að standa á sviði með 17 manna hljómsveit og fara yfir lífið mitt á þessum tímamótum, skoða aftur sólóplöturnar og flytja mín uppáhalds lög,“ segir Palli.

Hann segist ekki hafa flutt sum þeirra í 25 ár.

„Til dæmis allar ballöðurnar sem ég get ekki tekið á böllum. Þeir sem hafa fylgst með mér frá upphafi eiga eftir að bilast og hinir uppgötva vonandi eitthvað nýtt. Svo verða auðvitað öll helstu stuðlögin þarna líka,“ segir Páll Óskar sem hefur sjaldan verið jafn spenntur að telja í tónleika.

Stórhljómsveit Rigg viðburða mun leika undir undir styrkri stjórn Ingvars Alfreðssonar sem einnig útsetur öll lögin af þessu sérstaka tilefni.

„Þeir sem skrá sig á póstlista geta náð í miða tveimur dögum fyrir miðasöluna,“ segir Páll að lokum en miðasalan fer fram á tix.is og þar er einnig hægt að skrá sig á póstlistann.

Hér að neðan má sjá brot úr sérstakri heimildarmynd sem gerð var á sínum tíma um Pál Óskar og var til sýnis í Rokksafninu í Hljómahöll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.