Hægri hönd Björgólfs Thor hættir hjá Novator Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2020 10:52 Ragnhildur Sverrisdóttir tók við starfinu hjá Novator árið 2010.
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator, hyggst brátt láta af störfum eftir um tíu ár í starfi. Þetta kemur fram í frétt Markaðarins í morgun. Novator er fjárfestingafélag Björgólfs Thor Björgólfssonar, og hefur Ragnhildur meðal annars komið fram sem talskona Björgólfs hér á landi og komið skoðunum hans og gögnum á framfæri í málum sem tengjast hruninu. Ragnhildur segir í samtali við Vísi að starfslokin séu gerð í sátt og samlyndi og að nokkrar vikur séu síðan þetta hafi verið rætt. Hún muni þó starfa hjá Novator fram á vor og ljúka ákveðnum verkefnum. Hún segir tímann hjá Novator hafa verið fjörugan og lærdómsríkan. „Þetta hafa verið mjög misjöfn og krefjandi verkefni sem ég hef tekist á við. Ég byrja þarna skömmu eftir hrun, í mars 2010. Það hafa verið brekkur en líka mjög skemmtilegt. Þetta eru mikil viðfangsefni sem Björgólfur og Novator hafa tekist á við og náð að vinna sig upp úr,“ segir Ragnhildur. Hún segist ekki hafa ákveðið hvað muni taka við, en að það verði „eitthvað skemmtilegt“. Ragnhildur á langan feril í fjölmiðlum að baki en hún starfaði lengi á Morgunblaðinu, bæði sem blaðamaður og fréttastjóri.
Vistaskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira