Nærmynd af Stefáni Eiríkssyni: Partýkall sem tekur alltaf Duran Duran og elskar að brjóta saman þvott Sylvía Hall skrifar 17. febrúar 2020 20:51 Stefán tekur til starfa á RÚV þann 1. mars næstkomandi en hann er lögfræðingur að mennt. Skjáskot
Stefán Eiríksson, borgarritari Reykjavíkurborgar og fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins til næstu fimm ára. Stefán tekur til starfa á RÚV þann 1. mars næstkomandi en hann er lögfræðingur að mennt sem hefur komið víða við á lífsleiðinni. Stefán fæddist á Akureyri þann 6. júní árið 1970. Hann lauk grunnskólaprófi frá Hagaskóla í maí 1986 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í desember 1990. Stefán er sagður mjög vanafastur og skipulagður maður en um leið menningarlega sinnaður fagurkeri sem hefur mikinn unað af allskyns kveðskap, íslenskri ljóðlist og Eurovision. „Stefán er bara rosalega geðgóður maður,“ segir Ari Eldjárn um Stefán, en þeir eru hljómsveitarfélagar. Eiginkona hans, Helga Snæbjörnsdóttir, tekur í svipaðan streng og segir hans helsta kost vera hvað hann sé mikill morgunhani. „Þetta hefur orðið til þess að ég fæ yfirleitt alltaf frí á morgnanna,“ segir Helga. Hann sjái um morgunverkin, sem sé ómetanlegt. Hann vakni alltaf á sama tíma og morgunrútínan sé alltaf eins. Hann sé einnig frábær pabbi. Stefán er sagður mikill morgunhani og gleðigjafi.Skjáskot Hefur komið víða við Hann keppti í Morfís og Gettu betur fyrir hönd MH og var valinn ræðumaður Íslands í úrslitakeppni Morfís 1989. Síðar meir útskrifaðist hann frá lagadeild Háskóla Íslands eða í febrúar 1996. Stefán gerðist blaðamaður á Tímanum við upphaf tíunda áratugarins og síðar á Morgunblaðinu árin 1991–1996 samhliða laganámi. Undir lok námsins var hann ráðinn sem lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Í kjölfar þess starfaði hann svo í sendiráði Íslands í Brussel og sinnti þar verkefnum á sviði dóms- og innanríkismála. Hann var í stjórn Neyðarlínunnar frá árinu 2002 og stjórnarformaður til ársins 2007. Árið 2006 var Stefán skipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann gegndi því starfi þar til hann varð sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í september 2014. Á milli verkefna hefur hann svo sinnt stundakennslu í Háskóla Íslands og við Háskólann í Reykjavík en hann kenndi líka lögfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð samhliða laganámi. Í desember 2016 réð borgarráð Reykjavíkurborgar Stefán í starf borgarritara. „Ég þekki enga galla, ætli hann sé ekki bara fullkominn,“ segir Ari og hlær. Ragna Árnadóttir segir þrjósku blunda í honum en það þvælist ekki fyrir honum. Hann hafi mikið jafnaðargeð þó það sé skap í honum. Hann hafi tamið sér það að leyna því vel þegar hann skiptir skapi. „Maður þarf að vera búinn að vinna með honum í svolitla stund til að skilja að þessar vibrur við munninn, hvað þær þýða.“ Stefán var skipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu árið 2006.Skjáskot Forrest Gump týpa En ætlaði Stefán alltaf þá leið sem hann fór í lífinu? „Já, ég held hann hafi verið búinn að kortleggja þetta alveg þegar hann var bara unglingur. Að verða lögfræðingur, og síðan lögreglustjóri og síðan vinna fyrir velferðarsvið borgarinnar. Vera aðstoðarmaður borgarstjóra og svo útvarpsstjóri. Þetta er vel þekkt leið, það hafa margir farið þessa leið,“ segir Ari og hlær en segir svo Stefán vera einhverskonar „Forrest Gump-týpu“. „Hann flækist svolítið og fólk svona: Heyrðu, þú ættir að gera þetta. Já, okei, þá geri ég þetta.“ Helga segir hann þó hafa ætlað að verða leikara eða fara í íslensku. „En svo bara leiddi lífið hann í lögfræði og eitthvað og allskonar. Ég held til dæmis að þessi nýja vinna, að það sé eitthvað sem samræmist lífsmarkmiðum Stefáns þegar hann var yngri. Ekki það, ég veit svo sem ekkert út á hvað þetta starf gengur.“ Stefán þykir fantagóður söngvari.Skjáskot Stórskemmtilegur í gleðskap en með afmælisfóbíu „Það má varla minnast á afmælisdaginn hans því hann þolir ekkert umstang í kringum sjálfan sig en svo getur hann gert allt fyrir okkur á okkar dögum,“ segir Helga og segir Stefán vera með svolitla afmælisfóbíu. Hún segir það gleðja hann mest að gleðja aðra og hann leggi mikið á sig í þeim efnum. Aðrir vinir hans taka undir það og segja hann stórskemmtilegan í gleðskap. Þá sé hann einnig fantagóður söngvari. „Við erum í stórum vinahópi úr Hagaskóla sem hefur kynnst upp á nýtt á síðustu árum, eins og verða vill. Það er ekki leiðinlegt að vera í partíum með Stefáni Eiríkssyni, ég get sagt ykkur það,“ segir Auðunn Atlason æskuvinur Stefáns. Hér að neðan má sjá nærmynd af Stefáni Eiríkssyni í Íslandi í dag.
Fjölmiðlar Ísland í dag Ráðning útvarpsstjóra Tengdar fréttir Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri Borgarritari og fyrrverandi lögreglustjóri kominn í Efstaleitið. 28. janúar 2020 14:30 Stjórnin tókst á um Stefán eða Kolbrúnu Atkvæði féllu jöfn en oddaatkvæði Kára Jónassonar réði úrslitum. 29. janúar 2020 11:33 Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Sjá meira
Stefán Eiríksson nýr útvarpsstjóri Borgarritari og fyrrverandi lögreglustjóri kominn í Efstaleitið. 28. janúar 2020 14:30
Stjórnin tókst á um Stefán eða Kolbrúnu Atkvæði féllu jöfn en oddaatkvæði Kára Jónassonar réði úrslitum. 29. janúar 2020 11:33