Mané tryggði Liverpool sigur á botnliðinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. febrúar 2020 19:00 Sadio Mané tryggði Liverpool stigin þrjú í kvöld. Vísir/Getty
Liverpool vann nauman 1-0 útisigur á Norwich City í síðari leik dagsins í enska boltanum þökk sé marki Sadio Mané. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað enda bæði lið búin að vera í ágætri pásu og þá voru aðstæður ekki góðar á Carrow Road í kvöld en segja má að veðurfar á Englandi í dag hafi verið mjög íslenskt. Mikil rigning í bland við mikið rok. Heimamenn í Norwich City geta nagað sig í handarbökin fyrir að tapa leiknum þó svo að þeir aðeins hafi átt eitt skot á markið í öllum leiknum. Fengu þeir tvö frábær færi sem fóru forgörðum en Naby Keita hefði reyndar átt að koma Liverpool yfir áður en varamaðurinn Mané tryggði þeim sigurinn. Alisson bjargaði Liverpool í fyrri hálfleik þegar Teemu Pukki virtist vera við það að renna knettinum í netið eftir sendingu Lukas Rupp. Var það um það bil það eina markverða í fyrri hálfleik. Í þeim síðari fengu Liverpool sannkallað dauðafæri en Tim Krul varði meistaralega frá Keita af stuttu færi eftir að Hollendingurinn hafði varið skot Mo Salah út í teiginn. Skömmu síðar skaut Alexander Tettey í stöngina á marki Liverpool en Alisson virtist sannfærður um að Norðmaðurinn myndi gefa fyrir markið. Varamaðurinn Sadio Mané skoraði svo sigurmark leiksins á 78. mínútu en hann tók þó stórkostlega við knettinum eftir góða sendingu Jordan Henderson. Hann lagði knöttinn síðan snyrtilega í netið, staðan orðin 1-0 Liverpool í vil og reyndust það lokatölur leiksins. Sigurinn þýðir að Liverpool er nú með 76 af 78 stigum mögulegum þegar liðið hefur leikið 26 leiki. Forskot þeirra er orðið 25 stig og eingöngu spurning um hvenær titillinn verður endanlega kominn í hús. Norwich City er hins vegar í hinu margfræga júmbó sæti eða því neðsta. Liðið er með 18 stig, sjö stigum frá öruggu sæti.
Enski boltinn Tengdar fréttir Draumadagur fyrir Leeds | Jón Daði fagnaði sigri Hagur Leeds vænkaðist verulega í ensku B-deildinni í fótbolta í dag þegar liðið vann 1-0 sigur á Bristol City, liðinu í 7. sæti, á Elland Road. 15. febrúar 2020 16:45 Jóhann og félagar komnir upp fyrir Arsenal Burnley vann í dag góðan 2-1 útisigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og komst þar með upp fyrir Arsenal í 10. sæti. Arsenal á leik til góða við Newcastle á morgun. 15. febrúar 2020 14:15
Draumadagur fyrir Leeds | Jón Daði fagnaði sigri Hagur Leeds vænkaðist verulega í ensku B-deildinni í fótbolta í dag þegar liðið vann 1-0 sigur á Bristol City, liðinu í 7. sæti, á Elland Road. 15. febrúar 2020 16:45
Jóhann og félagar komnir upp fyrir Arsenal Burnley vann í dag góðan 2-1 útisigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og komst þar með upp fyrir Arsenal í 10. sæti. Arsenal á leik til góða við Newcastle á morgun. 15. febrúar 2020 14:15